BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv7.25.0//EN
X-ORIGINAL-URL:https://audarskoli.is/
X-WR-CALNAME:Auðarskóli
X-WR-CALDESC:Auðarskóli
X-WR-TIMEZONE:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20260501T111847
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-38e54247e7c88cc9f6eb8e59779bddcd@audarskoli.is
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260126T170000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260126T190000
DTSTAMP:20251208T114048Z
CREATED:20251208
LAST-MODIFIED:20260105
PRIORITY:5
SEQUENCE:4
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:Foreldrafræðsla um lestrarkennslu
DESCRIPTION:\nElsku foreldrar og forráðamenn barna í Auðarskóla öllum,\n \nÁ skólaráðsfundi 14. nóvember ( https://audarskoli.is/wp-content/uploads/2025/11/Fundargerd-Skolarads-14.-november-2025.pdf ) síðastliðinn var rætt mikilvægi þess að efla samstarf skóla og heimilis þegar kemur að lestrarkennslu og tryggja að bæði starfsfólk og foreldrar hafi sameiginlega þekkingu á áhrifaríkum leiðum til að styðja við lestrarnám barna. Rannsóknir á heimalestri hafa sýnt að markviss inngrip sem fela í sér fræðslu og leiðsögn til foreldra hafa marktæk áhrif á framfarir barna í lestri samanborið við að engin slík íhlutun fari fram. Árangurinn er mestur þegar foreldrum/forráðamönnum er veitt hagnýt leiðsögn um hvernig þeir geti hlustað á barnið lesa, stutt það með uppbyggilegum hætti og unnið með einfaldar lestraræfingar í daglegu lífi.\n \nJafnframt er mikilvægt að viðurkenna að margir foreldrar/forráðamenn finna til óöryggis í tengslum við heimalestur. Það er algeng og fullkomlega skiljanleg upplifun í ljósi þess að foreldrar/forráðamenn fá takmarkaða kennslu í þeim þáttum sem liggja að baki lestrarfærni. Það er því fremur ósanngjörn krafa á foreldra/forráðamenn að sinna þessu hlutverki án þess að þeim standi til boða viðeigandi fræðsla og leiðsögn.\n \nTil að mæta þessum vanda og styðja foreldra/forráðamenn í þessu mikilvæga hlutverki hefur Foreldrafélag Auðarskóla skipulagt lestrarkennslufræðslu sérstaklega miðaða að foreldrum/forráðamönnum:\n \nMánudaginn 26. janúar kl. 17:00-19:00 býður Foreldrafélag skólans foreldrum og forráðamönnum barna í leik- og grunnskóla velkomin á lestrarfræðslu. Hana veitir Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir læsisfræðingur, atferlisfræðingur og kennari sem starfar sem kennsluráðgjafi hjá Kópavogsbæ. Gert er ráð fyrir að fræðslan taki tvær klukkustundir.\n \nÁ fræðslunni verður fjallað um hvernig foreldrar/forráðamenn geta:\n\nstutt við lestur barna sinna heima,\nskipulagt heimalestrarþjálfun,\naukið hvata barna til lesturs.\n\n \nFræðslan verður sniðin að foreldrum/forráðamönnum barna á öllum aldri með leiðbeiningum sem auðvelt er að nýta í daglegu lífi fjölskyldunnar.\n \nÞað er mín einlæga ósk að þið nýtið ykkur þessa heimsókn frá þessum fjölhæfa fagaðila. Skrifið þetta niður í dagatalið ykkar. Við hlökkum til að fá hana Sigurlaugu í heimsókn og ég hlakka til að taka á móti ykkur í skólanum okkar.\n \nGuðmundur Kári Þorgrímsson\nStarfandi skólastjóri Auðarskóla\n\n
URL:https://audarskoli.is/vidburdir/foreldrafraedsla-um-lestrarkennslu/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://audarskoli.is/wp-content/uploads/2025/12/sigurlaug_run_brynleifsdottir_lit_p.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR
