Grunnforsenda alls forvarnarstarfs er að efla, þroska og styrkja nemendur í öllu skólastarfi og hafa velferð nemenda ávallt að leiðarljósi. Einstaklingar sem þekkja mátt sinn og hafa jákvæða sterka sjálfsmynd eru líklegri til að velja heilbrigðan vímuefnalausan lífsstíl.
Í þessu tilliti leggur Auðarskóli m.a. áherslu á eftirfarandi leiðir:
- Að hafa með jákvæðum og lýðræðislegum skólabrag jákvæð áhrif á viðhorf, t.d. til heilbrigðs lífernis og jákvæðra gilda lífsins.
- Að skipuleggja árlega sérstaka fræðslu með foreldrafélagi Auðarskóla fyrir foreldra og nemendur.
- Að nýta lífsleiknikennslu með markvissum hætti til að stuðla að heilbrigðum lífsstíl.
- Að halda uppi öflugu félagsstarfi þar sem nemendur þjálfast í að skemmta sér og öðrum án vímuefna.
- Að starfsfólk skólans sé nemendum jákvæð fyrirmynd og sé vel upplýst um hlutverk sitt og ábyrgð.
- Að vera í góðri samvinnu við aðra aðila sem koma að málefnum barna og unglinga í sveitarfélaginu, t.d. félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu, skáta og íþróttafélög.
- Að nota rannsóknarniðurstöður í forvarnarstörfum.
Ef aðilar skólastarfsins; nemendur, foreldrar og starfsmenn, verða varir við neyslu einhvers eða einhverra, þá standa þeir saman um að láta viðeigandi aðila vita.
Hlutverk forvarnarteymis má lesa hér að neðan