Mötuneyti

Matseðill-Apríl 2024

Matseðill-Mars 2024
Matseðill – Febrúar 2024
Matseðill – Janúar 2024
Matseðill – Desember 2023
Matseðill- Nóvember 2023          
Matseðill – Október 2023
Matseðill- September 2023    
Matseðill – Ágúst 2023              
Matseðill  -Apríl 2023
Breyttur matseðill frá 20.mars 2023
Matseðill –  Mars 2023
Matseðill – Febrúar 2023
Matseðill – Janúar 2023

Markmið mötuneytisins

Meginmarkmið:

  • Við matseðlagerð, hráefnisval, matreiðslu og framreiðslu er haft að leiðarljósi  að maturinn sé  hollur og næringarríkur, sé lystugur og henti börnunum.
  • Við skipulag, undirbúning og útfærslu eru leiðbeiningar í  Handbók fyrir skólamötuneyti sem gefin var út af Lýðheilsustöð hafðar að leiðarljósi.
  • Reglulega er leitað til næringarráðgjafa með leiðbeiningar, yfirlestur matseðla og aðra  ráðgjöf.

Helstu viðmið:

  • Lögð er áhersla á fjölbreytni við matseðlagerð, að orku- og næringargildi einstakra máltíða sé hæfilegt og takmörkun á salti og harðri fitu.
  • Stefnt er að því að fiskur sé a.m.k. vikulega á matseðli.
  • Lögð áhersla á að grænmeti og ávextir séu daglega í boði.
  • Velja sem oftast ferskar/frosnar vörur og velja kjötvörur með minna en 10% fitu.
  • Nota reglulega grænmetis/baunarétti til tilbreytingar.
  • Miða við að saltur og reyktur matur verði ekki oftar en mánaðarlega sem  aðalréttur.
  • Farsvörur eða naggar verði helst ekki oftar en þrisvar í mánuði.
  • Við skömmtun eru börnin hvött til að smakka á mat sem þeim er framandi með áherslu á að draga úr matvendni og einhæfni.
  • Reglulega sé boðið upp á mat sem endurspeglar gamla íslenska matarhefð.

Fyrirkomulag:Grunnskóli:  Mötuneyti  grunnskóladeildar er í Dalabúð og þangað fara nemendur og starfsmenn til að matast. Þar er reiddur fram morgunmatur kl. 9:10-9:30, fyrir yngsta stig, og kl. 09.50-10.10, fyrir mið- og elsta stig, alla daga og hádegismatur kl. 11:50-12:20, fyrir yngsta stig, og 12.30-13.00, fyrir mið- og elsta stig, mán.-fim. Mælst er til þess að hálfu skólans að allir grunnskólanemendur séu í morgunmat og hádegismat.  Þeir nemendur sem kjósa að koma með nesti að heiman borða það í mötuneytinu.

Leikskóli: Í leikskólanum er borinn fram morgunmatur kl. 08.00, hádegismatur kl. 11.30 og síðdegishressing kl. 14.30.  Matast er inni á deildum skólans. Hádegismaturinn kemur úr mötuneyti Auðarskóla í Dalabúð.Vinsamlegast athugið að matseðlar geta breyst af óviðráðanlegum orsökum.  Upplýsingar um vikulegan matseðil er að finna á heimasíðu skólans,  á auglýsingasvæði í grunn- og leikskóla og  síma 430-4710.