Matseðill-September 2024
Matseðill-Ágúst 2024-Pdf
Matseðill-Maí 2024
Matseðill-Apríl 2024
Matseðill-Mars 2024
Matseðill – Febrúar 2024
Matseðill – Janúar 2024
Meginmarkmið:
- Við matseðlagerð, hráefnisval, matreiðslu og framreiðslu er haft að leiðarljósi að maturinn sé hollur og næringarríkur, sé lystugur og henti börnunum.
- Við skipulag, undirbúning og útfærslu eru leiðbeiningar í Handbók fyrir skólamötuneyti sem gefin var út af Lýðheilsustöð hafðar að leiðarljósi.
- Reglulega er leitað til næringarráðgjafa með leiðbeiningar, yfirlestur matseðla og aðra ráðgjöf.
Helstu viðmið:
- Lögð er áhersla á fjölbreytni við matseðlagerð, að orku- og næringargildi einstakra máltíða sé hæfilegt og takmörkun á salti og harðri fitu.
- Stefnt er að því að fiskur sé a.m.k. vikulega á matseðli.
- Lögð áhersla á að grænmeti og ávextir séu daglega í boði.
- Velja sem oftast ferskar/frosnar vörur og velja kjötvörur með minna en 10% fitu.
- Nota reglulega grænmetis/baunarétti til tilbreytingar.
- Miða við að saltur og reyktur matur verði ekki oftar en mánaðarlega sem aðalréttur.
- Farsvörur eða naggar verði helst ekki oftar en þrisvar í mánuði.
- Við skömmtun eru börnin hvött til að smakka á mat sem þeim er framandi með áherslu á að draga úr matvendni og einhæfni.
- Reglulega sé boðið upp á mat sem endurspeglar gamla íslenska matarhefð.
Fyrirkomulag:
Vínlandssetur ehf. tók við rekstri skólamötuneytis í byrjun skólaárs 2023. Mötuneyti grunnskóladeildar er í Dalabúð og þangað fara nemendur og starfsmenn til að matast. Vegna breyting á stundatöflu haustið 2024 verða matmálstímar í grunnskóla á eftirfarandi tímum: Morgunmatur milli kl. 8:30 og 9:10 og hádegismatur milli kl. 12:10 og 12:50. Mælst er til þess að hálfu skólans að allir grunnskólanemendur séu í morgunmat og hádegismat. Þeir nemendur sem kjósa að koma með nesti að heiman borða það í mötuneytinu.
Leikskóli: Í leikskólanum er morgunmatur kl. 08.00, hádegismatur kl. 11.20 í síðasta lagi og síðdegishressing kl. 14.30. Matast er inni á deildum skólans. Hádegismaturinn kemur frá skólamötuneytinu.