Verklagsreglur um innritun og vistun

                                              Verklagsreglur um innritun og vistun í leikskóla Auðarskóla-Pdf                                                                                 

                                                                                                          1. gr.                      
Skilyrði fyrir leikskóladvöl barns er að fjölskylda þess eigi lögheimili í Dalabyggð, skv. þjóðskrá. Foreldrar leikskólabarna sem hyggjast flytja í Dalabyggð geta sótt um leikskóladvöl en þau fá ekki inngöngu fyrr en lögheimli hefur verið flutt.
                                                                                                          2. gr.
Leikskólinn er ætlaður börnum frá 12 mánaða aldri. Umsóknareyðublað er hægt að nálgast á heimasíðu Auðarskóla, í leikskólanum eða hjá ritara skólans. Ef ekki eru laus pláss í leikskólanum fer umsókn á biðlista. Úr biðlistum er unnið samkvæmt grein 6.
                                                                                                          3. gr.
Lágmarksvistun eru fjórir tímar á dag og þá minnst þrjá daga vikunnar. Við vistun á 12 mánaða börnum er ráðlagt að vistun sé minnst fjóra samfellda daga í viku. Klukkan 9.00 hefst dagskrá á leikskólanum og ekki gott að nemendur komi seinna en það í vistun. Ekki er hægt að skrá vistun á hálfum tímum né korterum nema á náðarkorterum, sem hægt er að kaupa í upphafi og við lok vinnudags. Foreldrar 12 mánaða gamalla barna þurfa að útvega vagna/kerrur til að koma á móts við svefnvenjur þeirra úti. Leikskólinn geymir vagna/kerrur yfir nótt/helgi sé þess óskað.

Komutímar: kl. 8.00; 8.45; 9.00
Komutímar með náðarkorteri: kl. 7.45; 8.45

Brottfarartímar: kl. 12.00; 13.00; 14.00; 15.00; 16.00
Brottfarartímar með náðarkorteri: 16.15 
Brottfarartími kl. 16.30 ef barn nýtir hámarksvistunartíma frá kl. 8.00. Greitt fyrir 8,5 klst.
Brottfarartími kl. 16.30 ef barn er í vistun frá kl. 9.00. Greitt fyrir 7,5 klst.
Brottfarartími kl. 14.00 á Föstudögum

Matmálstímar eru eftirfarandi:
Morgunmatur: kl. 8.00 – 08.45
Hádegismatur: kl. 11.10 – 12.00
Síðdegiskaffi: kl. 14.20

                                                                                                          4. gr.
Þar sem foreldrar, sem nýta sér skólaakstur, geta ekki haft áhrif á komu eða brottfarartíma skólabíla er vistunartími og leikskólagjöld leikskólabarna í skólaakstri reiknaður á eftirfarandi hátt: Mán. – fim. kl. 8.00-15.00, samtals 7 klst. og föstudagar kl. 8.00-12.00 samtals 4 klst.
                                                                                                          5. gr.
Forgangshópar (í fyrsta forgangi er börn í hópi A , svo B og svo koll af kolli) eru:
A. Börn sem búa við fötlun, misþroska, ofvirkni eða vegna félagslegra aðstæðna, sem er talið nauðsynlegt að mati félagsþjónustu að fái leikskólavist.
B. Börn einstæðra foreldra.
C. Börn á síðasta ári leikskólans (5 ára börn).
D. Börn starfsmanna leikskólans.
E. Börn sérmenntaðra starfsmanna, sem byggðaráð metur að ráðning sé háð leikskólavistun og varði hagsmuni sveitarfélagsins.
                                                                                                          6. gr.
Þau börn sem fara á forgangslista fara fram fyrir önnur börn á biðlistanum. Við forgang er eins og önnur vistun háð því að laust pláss sé fyrir hendi. Koma þarf beiðni um forgang frá foreldrum annars fer barn ekki sjálfkrafa í forgang. Við úrvinnslu á biðlistum skal viðhafa eftirfarandi vinnubrögð:
-Börn í forgangi ganga fyrir öðrum börnum.
-Því eldra sem barnið er því meiri forgang hefur það. Tólf mánaða gömul börn hafa því minnstan forgang.
-Ef velja þarf milli barna á sama ári ræður kennitala þannig að elsta barnið gengur fyrir.
-Ef sótt er um fyrir barn sem er að flytja í sveitarfélagið Dalabyggð fer það aftast í biðröð, nema það sé í forgangshópum.
                                                                                                          7. gr.
Einstæðir foreldrar greiða lægra gjald á leikskóla, svo og ef foreldrar eru í fullu námi, sjá gjaldskrá leikskólans. Skilyrði fyrir niðurgreiðslu er að einstæðir foreldrar framvísi á hverju ári vottorði frá sýslumanni eða Tryggingarstofnun ríkisins. Eins er með foreldra í námi, þeir verða að framvísa innritunarvottorði /námsvottorði frá skóla í upphafi hverrar annar. Hefji einstætt foreldri sambúð, skal það greiða hærra gjald, strax og sambúð hefst. Slíti foreldrar sambúð, skal leggia fram vottorð frá sýslumanni og kemur þá til lækkunar á gjaldi.
                                                                                                          8. gr.
Ef barn er veikt í 2 vikur samfellt, endurgreiðist 1 vika af leikskólagjaldi. Ef barn er veikt, umfram 2 vikur samfellt, endurgreiðist gjald umfram 1 viku. Með beiðni um endurgreiðslu ber að framvísa læknisvottorði. Fari leikskólabarn í frí á vistunartíma, t.d. vegna ferðalaga, greiðast leikskólagjöld engu að síður enda ljóst að barnið verður í vistun að leyfistíma liðnum. Fæði er ekki innheimt í leyfum. Vistunarpláss haldast fram yfir sumarleyfi, nema forráðamaður segi því upp.
                                                                                                          9. gr.
Séu leikskólagjöld ógreidd í þrjá mánuði er barni sjálfkrafa sagt upp leikskóladvöl.
                                                                                                         10. gr.
Sækja þarf um skriflega ef breyta á vistunartíma barns fyrir 20. hvers mánaðar. Breyting á vistun tekur gildi 1. næsta mánaðar. Að öðrum kosti greiðist næsti mánuður eins. Stjórnendur leikskólans fara yfir umsóknina og samþykkja eða hafna henni eftir aðstæðum. Ekki er víst að hægt verði að koma til móts við allar óskir strax.
                                                                                                         11. gr.
Tilkynna skal skriflega fyrir 20. hvers mánaðar ef sagt er upp leikskóladvöl fyrir barn frá og með 1. næsta mánaðar. Einnig þarf að segja upp leikskóladvöl skriflega þegar barn hættir vegna aldurs.

Reglur þessar voru samþykktar á 117. fundi Fræðslunefndar þann 31. janúar 2023 og staðfestar í sveitarstjórn þann 9. febrúar 2023.