Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla verður haldinn í grunnskólanum fimmtudaginn 18. september kl. 20:00.
Dagskrá: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Fráfarandi stjórn gerir grein fyrir starfi síðasta starfsárs og fjárhagslegri stöðu félagsins 3. Fulltrúar í skólaráði gera grein fyrir starfi síðasta starfsárs 4. Lagabreytingar 5. Kosningar. Stjórnarkjör, og kosning fulltrúa í fræðslunefnd og skólaráð ef þörf er á. 6. Önnur mál Foreldrafélag Auðarskóla er sameiginlegt foreldrafélag fyrir leik-og grunnskóla. Foreldrar eru hvattir til að mæta. |