Kaffihúsakvöld 2026
Kaffihúsakvöld er rótgróinn liður í starfi Auðarskóla og byggir framkvæmd þess á starfsáætlun skólans. Viðburðurinn er haldinn ár hvert í Dalabúð og stendur yfir í um tvær klukkustundir, frá kl. 17:00 til 19:00. Í ár er viðburðurinn haldinn miðvikudaginn 18. nóvember. Húsið opnar kl. 16:30.
Skóladegi lýkur strax eftir hádegismat kl. 12:50. Þá leggja skólabílar af stað heim með nemendur í grunnskóla og leikskólabörn. Ég minni foreldra á að láta skólabílstjóra vita ef þau ætla ekki að nýta skólaaksturinn þennan daginn. Nemendur á elsta stigi mæta svo aftur kl. 16:00 til að leggja lokahönd á undirbúning. Aðrir geta mætt frá kl. 16:30 en eigi síðar en kl. 17:00. Það er mikilvægt að fullorðinn aðili fylgi nemendum í 1-7. bekk á viðburðinn.
Verð og greiðslumöguleikar:
Aðgangur kostar 1.500.- fyrir almenning.
Aðgangur kostar 1.000.- fyrir 65 ára og eldri.
Aðgangur er ókeypis fyrir nemendur Auðarskóla.
Happdrættismiði kostar 500.-
