Danskennsla hefst

Danskennari er Jón Pétur Úlfljótsson og hann kennir öllum nemendum grunnskólans og börnum á eldri deild leikskólans. Kenndur er dans í sjö kennsludaga og endað á danssýning á sjöunda deginum. Danskennsla fer fram í íþróttahúsinu og dansýningin verður haldin þar líka. 

Dans er mikilvægur þáttur í alhliða menntun nemenda. Með dansi fá nemendur tækifæri til að efla hreyfiþroska, samhæfingu, líkamsvitund, sköpunargáfu og sjálfstraust. Dansinn hefur jafnframt sterka félagslega skírskotun þar sem nemendur þjálfast í samvinnu, samskiptum, tillitssemi og virðingu fyrir öðrum. Danskennsla stuðlar að fjölbreyttu skólastarfi þar sem ólíkir styrkleikar nemenda fá að njóta sín. Hún gefur nemendum tækifæri til að upplifa gleði í hreyfingu, kynnast menningu og hefðum og öðlast færni sem getur nýst þeim í daglegu lífi. Markmiðið er ekki að allir verði góðir dansarar heldur að allir fái tækifæri til að hreyfa sig, skapa, vinna saman og upplifa sig sem hluta af jákvæðu samfélagi.

Á danssýningardegi fá nemendur í grunnskólanum auka snarl í kringum 10:30 leytið og skólabílar aka heim um kl. 13:00 að lokinni sýningu. 

  • 00

    days

  • 00

    hours

  • 00

    minutes

  • 00

    seconds

Date

19. - 27. nóvember, 2026

Time

08:00 - 18:00
QR Code