Samkvæmt 2.gr. í lögum um leikskóla skal velferð og hagur barna haft að leiðarljósi og þeim veitt ummönnun og menntun í hollu og hvetjandi uppeldisumhverfi við örugg náms- og leikskylrði. Greinina má sjá í heild sinni hér neðar.
Með dagskipulag er verið að tryggja að öll börn leikskólans hafi jöfn tækifæri til náms og leiks. Tryggt er að öll börn fari í skipulagðar stundir þar sem unnið er með málhljóð og vináttu, listgreinar þar sem þau fá að skapa og að þau fái hreyfingu og útiveru við hæfi. Einnig er frjálsum leik gefið rými, í frjálsum leik fær ímyndunarafl barnanna að njóta sín og sköpun að eflast, á sama tíma eru þar tækifæri til æfinga í samskiptum og samvinnu.
Dagskipulag Dvergahlíðar, 1-3 ára börn.
Dagskipulag Tröllakletts, 3-6 ára börn.
2. gr. Markmið.
Í leikskólum skal velferð, [farsæld] 1) og hagur barna hafður að leiðarljósi í öllu starfi. Veita skal börnum umönnun og menntun, búa þeim hollt og hvetjandi uppeldisumhverfi og örugg náms- og leikskilyrði. Stuðla skal að því að nám fari fram í leik og skapandi starfi þar sem börn njóta fjölbreyttra uppeldiskosta. Starfshættir leikskóla skulu mótast af umburðarlyndi og kærleika, jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi, ábyrgð, umhyggju, sáttfýsi, virðingu fyrir manngildi og kristinni arfleifð íslenskrar menningar.
Meginmarkmið uppeldis og kennslu í leikskóla skulu vera:
a. að fylgjast með og efla [farsæld og] 1) alhliða þroska barna í náinni samvinnu við foreldra,
b. að veita skipulega málörvun og stuðla að eðlilegri færni í íslensku,
c. að hlúa að börnum andlega, vitsmunalega og líkamlega í samræmi við þarfir hvers og eins svo að börnin fái notið bernsku sinnar,
d. að stuðla að víðsýni barna og efla siðferðisvitund þeirra,
e. að leggja grundvöll að því að börn verði sjálfstæðir, virkir og ábyrgir þátttakendur í lýðræðisþjóðfélagi sem er í örri og sífelldri þróun,
f. að rækta hæfileika barna til tjáningar og sköpunar í þeim tilgangi m.a. að styrkja sjálfsmynd þeirra, heilbrigðisvitund, öryggi og hæfni til mannlegra samskipta.
PDF útgáfur af dagskipulagi deildanna má finna hér: