3. bekkur hefur verið í fullu fjöri upp á síðkastið og unnið hin ýmsu verkefni. Tilvalið er að deila því og birta með því myndir.
Bekkurinn lærði um íslenska þjóðhætti í apríl og í tengslum við það verkefni var m.a. farið á byggðasafn og haldin kynning fyrir foreldra við lok verkefnisins. Valdís Einarsdóttir tók á móti bekknum á byggðasafninu á Laugum og fræddi á ýmsan hátt. Þar sáu nemendur m.a. áhöld og hluti sem notaðir voru til mjólkurgerðar, baðstofu, heyvinnuáhöld, bát og fatnað. Segja má að nemendur hafi farið aftur í tímann um 100 – 200 ár og einungis voru skoðaðir hlutir sem talið er að hafi verið notaðir fyrir svo löngu síðan. Kynningin var á efni tengt bókinni Komdu og skoðaðu íslenska þjóðhætti. Í bókinni er fjallað um hið forna mánaðatal ( Hörpu, Skerplu, Þorra, Góu). Hverjum af hinum fornu mánuðum voru gerð skil og höfðu nemendur aflað sér upplýsingar víðar en bara í námsbókinni. |