Nemendur elsta stigs tóku þátt í smiðjuhelgi dagana 5. – 6. október sem haldin var á Kleppjárnsreykjum. Nemendur völdu sér smiðju og í boði var:
- björgunarsveit
- förðun
- dans
- leiklist
- mótórhjóla/smávélaviðgerðir
- sundknattleikur
- sirkus
Auk okkar nemanda tóku þátt nemendur frá Grunnskóla Borgarfjarðar, Reykhólaskóla og Laugagerðisskóla. Nemendur voru almennt ánægðir með þessa ferð.