Reglur-Gestanemendur-Grunnskóli Auðarskóla-Pdf
Reglur Auðarskóla um gestanemendur
Gestanemendur
Eftirfarandi viðmiðunarreglur gilda varðandi gestanemendur við grunnskóla Auðarskóla:
- Mikilvægt er að óska eftir leyfi fyrir gestanemendur í grunnskóla Auðarskóla.
- Sótt er um leyfi til umsjónarkennara og skólastjóra. Skólastjóri ræðir við umsjónarkennara og aðra kennara sem koma til með að kenna nemanda og gefur svar til umsækjenda að því loknu.
- Sækja skal um leyfi með viku fyrirvara.
- Gestir geta einungis komið einu sinni á önn. Annarskipti í kringum 20. janúar.
- Gestir geta einungis dvalið í skólanum 1 dag á önn.
- Gestir greiða fyrir máltíðir og þurfa að greiða 1000 kr.
- Gesturinn fylgir jafnaldra í kennslustundir og verður að koma með eigið námsefni eða viðfangsefni við hæfi og íþróttaföt eða sundföt fyrir íþróttatíma.
- Forsendur heimsóknar eru að hegðun nemandans valdi ekki truflun í bekknum.
- Gestanemandi fylgir skólareglum.
- Sérstakar ástæður þurfa að vera fyrir beiðni um lengri námsdvöl og þarf að sækja um hana til sveitarfélagsins v/kostnaðarþátttöku lögheimilissveitarfélags.
Stundum eru aðstæður í skólastarfi þannig að það er erfitt að taka á móti gestanemendum og því er það í höndum skólastjóra að meta hverja umsókn eftir aðstæðum. Helstu reglur sem gilda um gestanemendur eru að þeir taki þátt í skólastarfinu og fari eftir skólareglum. Forráðamenn gestanemenda verða að fylla út eyðublað ef þeir óska eftir að gestanemandi nýti þjónustu skólans sem og dvöl í Kátadal eða mötuneyti og upplýsa um hver greiðir fyrir þá þjónustu. Umsóknareyðublað er að finna á heimasíðu skólans: audarskoli.is/Skólinn/Eyðublöð.
Auðarskóli 27. apríl 2023
Herdís Erna Gunnarsdóttir
skólastjóri Auðarskóla