Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi þann 1. janúar 2022. Meginmarkmið laganna er að skapa umgjörð sem stuðlar að því að börn og foreldrar, sem á þurfa að halda, hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Nánar má lesa um lög þessi á vefnum www.farsaeldbarna.is.
Öll börn undir 18 ára aldri, og fjölskyldur þeirra, eiga að hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf er á.
Hlutverk tengiliðar er:
- að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi
- að rækja hlutverk sitt í samstarfi og samráði við foreldra og barn
- að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns
- að aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns
- að skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns
- að koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra
- að taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á
Þegar barn er við nám í leik-, grunn-, eða framhaldsskóla er tengiliður þjónustu í þágu farsældar barns starfsmaður skólans þar sem barnið er við nám eða leik.
Tengiliðir Auðarskóla:
- Grunnskóladeild: Sólrún Ýr Guðbjartsdóttir, deildarstjóri stoðþjónustu. Netfang: solrun@audarskoli.is
- Leikskóladeild: Svanhvít Lilja Viðarsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri. Netfang: svanhvit@audarskoli.is