Leyfi
Reglur um leyfi nemenda
Samkvæmt 19. gr. laga um grunnskóla bera foreldrar ábyrgð á því að börn þeirra sæki skóla.
Foreldrar/Forráðamenn geta óskað eftir að taka nemanda tímabundið úr skóla. Ef um einn eða tvo daga er að ræða eða tilteknar
kennslustundir nægir samþykki umsjónarkennara eða ritara.
Ef beiðni er um leyfi til lengri tíma geta forráðamenn sótt um leyfi á eyðublaði sem er að finna HÉR.
Skólinn áskilur sér rétt til athugasemda ef beiðnir um leyfi virðast keyra úr hófi fram.
Mikilvægt er að bílstjórum sé tilkynnt ef breytingar verða á ferðum nemenda, svo sem eins og veikindi eða leyfi.
Þetta fyrirkomulag er nokkuð samræmt í skólum landsins vegna skólaskyldu í landinu okkar.
Mikilvægt er að huga vel að því hvernig námi nemenda skuli sinnt meðan þeir eru í leyfi og
er gott að ræða við umsjónarkennara um hvernig því skuli best háttað hverju sinni.
Að öðru leyti er vísað í álit og úrskurð Menntamálaráðuneytisins um þetta efni þar sem mælt er með að
skólar taki tillit til þarfa fjölskyldna til samveru t.d. í ferðalögum sem stundum skarast við skólatíma.
Foreldrar/Forráðamenn eru vinsamlega beðnir um að haga leyfum þannig að ekki komi til þess að nemandi sé í leyfi þegar
starfið kallað á fulla viðveru nemanda.
Veikindi
Veikindi þurfa foreldrar/forráðamenn að tilkynna skóla fyrir kl. 8:30 að morgni hvers dags, sem nemandi er frá námi.
Veikindi ber að tilkynna með símtali 430-4757 eða tölvupósti til ritara: ritari@audarskoli.is
Einnig er nauðsynlegt að senda alltaf afrit á umsjónarkennara.
Verði nemandi veikur á skólatíma er haft samband við heimili og foreldrar/forráðamenn beðnir um að sækja nemandann.
Nemendur sem eru frá skóla í lengri tíma t.d. í kjölfar aðgerðar eða þyngri veikinda eiga rétt á heimakennslu.
Skólastjóri áskilur sér rétt að fara fram á að foreldrar skili inn veikindavottorði þegar um tíð eða löng forföll vegna veikinda er að ræða.