Bleikur dagur
Við erum öll flott í bleiku og sýnum það og sönnum 23. október, þá verður bleikur dagur í Auðarskóla öllum. Við óskum eftir því að nemendur og starfsfólk sýni lit og klæðist einhverju bleiku svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni fyrir stuðning okkar og samstöðu.