Vorhátíð og skólaslit
Miðvikudagurinn 3. júní er síðasti skóladagur grunnskólanemenda. Dagurinn skiptist í tvennt og að venju fer vorhátíðin fram fyrir hádegi og skólaslit eftir hádegi. Nemendur, starfsfólk og foreldrar gera sér glaðan dag á vorhátíðinni. Foreldrafélag Auðarskóla aðstoðar við skipulagningu. Skóladegi lýkur kl. 12:10 og skólabílar aka heim kl. 12:15.
Formleg skólaslit Auðarskóla fara fram í Dalabúð og hefst athöfn kl. 16:30. Allir nemendur fá vitnisburðarskjöl sín afhent og formleg útskrift nemenda 10. bekkjar og elstu barnanna í leikskólanum fer einnig fram. Athöfnin stendur yfir í rétt rúma klukkustund. Nemendur 10. bekkjar koma til með að fylgja útskriftarárgangi leikskólans upp á svið í athöfninni og standa þeim við hlið þegar hópurinn útskrifast úr leikskólanum. Að athöfn lokinni er útskriftarnemum 10. bekkjar grunnskólans og útskriftarárgangi leikskólans ásamt foreldrum þeirra, forráðamönnum og starfsfólki skólans boðið til kaffisamsætis í efri sal Dalabúðar.
