Nýja sófasettið

admin

Nú hafa verið keyptir nýir sófar í efra rými grunnskólans í Búðardal.  Sófarnir leysa af hólmi gamalt sófasett, sem elstu menn muna vart hvernær var keypt.  Var það mál manna að löngu væri orðið tímabært að bæta setaðstöðu nemenda og endurnýja sófana. Í framhaldinu verður unnið að því að setja upp hljóðkerfi í rýminu þannig að auðvelt verði að spila …

Heimasíðan komin í lag

admin

Nú í nótt komst heimasíðan aftur í loftið.  Tilkynningar og fréttir fara að birtast á síðunni á nýjan leik.

Áhrif verkfalls leikskólakennara á leikskóla Auðarskóla

admin

Félag leikskólakennara hefur boðað til verkfalls mánudaginn 22. ágúst næstkomandi, hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma. Ef af boðuðu verkfalli verður, lokar Álfadeild leikskóla Auðarskóla frá og með þeim tíma. Bangsadeild og önnur starfssemi leikskólans verður með óbreyttum hætti. Vel verður fylgst með framvindu verkfallsins og hugsanlegum ágreiningsmálum með veitta þjónustu leikskólans í huga. Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri

Starfsmannabreytingar á leikskóla

admin

Skólaárið 2011 – 2012 verða allnokkrar breytingar á starfsliði leikskólans. Þær Ragnheiður Bæringsdóttir, Boga Thorlasius og  María Ólafsdóttir hafa látið af störfum.  Þá hefur  Björt Þorleifsdóttir deildarstjóri fengið launalaust ársleyfi frá störfum til að sinna námi.  Í þeirra stað hafa verið ráðnar Málfríður M. Finnsdóttir, Gunnhildur Pétursdóttir þroskaþjálfi  og Guðrún Kristinsdóttir leikskólakennari.  Samfara þessu urðu eftirfarandi breytingar á mönnun deilda: …

Mötuneyti Auðarskóla

admin

Fyrir skólaárið 2011 – 2012 verða nokkrar breytingar á starfssemi Auðarskóla.  Ein þessara breytinga er að Sveitarfélagið Dalabyggð hefur kosið að endurnýja ekki samning við Samkaup á kaupum á heitum máltíðum fyrir Auðarskóla. Nú 2. ágúst hóf starfssemi nýtt mötuneyti Auðarskóla.  Mötuneytið er staðsett í Dalabúð og mun sjá um heitan mat í hádegi fyrir grunn- og leikskóla og morgunmat …

Gleðilegt sumararfrí

admin

Í dag var síðasti dagurinn í leikskóla Auðarskóla á þessu skólaári.  Framundan er sumarfrí til 2. ágúst næstkomandi.  Við kveðjum því í bili með myndasyrpu frá vordögum leikskólans. Slóðin er hér. Gleðilegt sumarfrí Starfsfólk leikskólans

Skóladagatöl fyrir skólaárið 2011 – 2012

admin

Nú eru skóladagatölin fyrir næsta skólaár komin á heimasíðu skólans.  Um er að ræða sameiginlegt dagatal fyrir tónlistar- og grunnskóladeild og svo dagatal fyrir leikskóladeild.   Þið finnið dagatölin undir AUÐARSKÓLI > Um skólann. Einnig hér. Það er um að gera að prenta dagatölin út og hengja á ísskápinn í eldhúsinu.

Myndir frá skólaferðalagi eldri nemenda

admin

Dagana 24. – 25. maí foru nemendur í 8. – 10. bekk í skólaferðalag í Skagafjörðinn. Þar m.a.var farið í heimsókn á Hóla, Vesturfarasafnið, í flúðasiglingu og klettaklifur. Umsjónarkennaranir Jónína Magrét og Kristján Meldal fylgdu nemendum. Sveinn sá að vanda um aksturinn. Ekki eru allar myndir komnar í hús af ferðinni, t.d. vantar enn myndir af flúðasiglingunni. Hægt er að …

Frá skólabókasafni

admin

Til þeirra sem eiga eftir að skila bókum.  Vinsamlegast skilið bókum af skólabókasafninu fyrir sumarlokun grunnskólans 16. júní næstkomandi.

Vorferð leikskólans

admin

Þriðjudaginn 7. júní verður vorferðalag leikskólans.  Lagt verður af stað upp úr kl. 9:00 og munu Sveinn á Staðarfelli og Kalli í KM vera bílstjórarnir okkar. Leikskólinn tekur með nesti til ferðarinnar. Farið verður í Daníelslund í Borgarfirðinum og rölt þar um stíga,  nestið borðað  og leikið.  Þaðan er farið í Baulu; borðaður ís og leikið á útisvæðinu. Mjög mikilvægt er …