Nú er undirbúningur fyrir árshátíðir skólans kominn á fullt. Árshátíðirnar verða tvær eins og í fyrra; í Dalabúð þann 31. mars og í Tjarnarlundi 30. mars. Gert er ráð fyrir því að allir nemendur grunnskóladeildarinnar komi til með að taka þátt með einum eða öðrum hætti. Miðaverð verður það sama á báðum árshátíðum eða krónur 600 fyrir 6 …
Harmonikkusveit í leikskólanum
Ákveðið hefur verið að nemendur tónlistarskólans komi reglulega í heimsókn í leikskólann. Markmiðið með þessum heimsóknum er að auðga tónlistareynslu leikskólabarna. Þann 21. mars kom fönguleg sveit harmonikkuspilara í heimsókn í leikskólann. Þetta voru nemendur og kennarar tónlistarskólans. Þeir spiluðu nokkur lög og sátu allir mjög stilltir og prúðir og hlustuðu áhugasamir á meðan.
Nýtt þema í leikskólanum
Nú eru börnin á Álfadeild komin í gang með verkefni um hunda. Þau byrjuðu á að gera vefinn, þar sem skráð er það sem þau vita um hunda og hangir vefurinn fram á gangi. Síðan eru allir búnir að teikna myndir af hundum. Hugrún á bókasafninu lánaði bækur um hunda og Jósy hefur líka lánað bækur og blöð, hún ætlar …
Stærðfræðikeppnin á Akranesi
Fimm nemendur úr Auðarskóla fóru ásamt kennara sínum upp á Akranes til þess að taka þátt í hinni árlegu stærðfræðikeppni sem þar er haldin. Nemendur okkar hafa ávallt staðið sig vel því er okkur sérstök ánægja að senda nemendur þangað til þátttöku. Áhugi hjá nemendum í skólanum okkar er þó nokkur fyrir keppninni og fengu færri að fara en vildu …
Nótan – uppskeruhátíð
Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskóla á Vesturlandi og Vestfjörðum var haldinn í Stykkishólmi nú síðastliðinn laugardag. Átta tónlistarskólar tóku þátt að þessu sinni og þar á meðal var Auðarskóli með tvö atriði. Söngsveit Auðarskóla söng tvö lög og Steinþór Logi Arnarsson lék frumsamið lag á harmoniku. Þrátt fyrir nokkur forföll í söngsveitinni gengu atriði skólans vel. Í lokaathöfn hátíðarinnar var …