Í þessari viku verður kærleiksvika á elsta stigi. Lögð er áhersla á hæfni tengt sjálfsmynd, sjálfstrausti, ábyrgð og áhrif hvers og eins. Nemendur fara í slökunaræfingar á hverjum degi og teknar verða umræður um alls konar viðkvæm málefni í vikunni; svo sem kynlíf, kynferðisofbeldi, ofbeldi í nánum samböndum, erfiðleika í lífi einstaklinga o.fl. Flestar hefðbundnar námsbækur verða því lagðar til hliðar á meðan en nemendur mæta þó í stærðfræðitíma. List- og verkgreinar eru samkvæmt stundatöflu. Lærdómur er jú alls konar og fer ekki einungis fram í kennslubókum heldur einnig í gegnum gagnvirk samskipti og ígrundun. Kærleiksvikan tekur helst mið af 18. kafla aðalnámskrár grunnskóla. Þ.e. lykilhæfni. Sjá hér hæfniviðmið fyrir elsta stig við lok grunnskóla: https://adalnamskra.is/adalnamskra-grunnskola/kafli-18
Rauði þráðurinn í vikunni er þakklæti. Teknar verða þakklætisæfingar á hverjum degi og munu nemendur skrá í þakklætisdagbókina á hverjum degi yfir vikuna. Foreldrar eru hvattir til að kynna sér hana (sjá hér: https://issuu.com/gudmundurkari/docs/thakklaetisdagbokin).
Í þakklætisæfingum þökkum við fyrir þá hluti sem við höfum, í stað þess að kvarta yfir því sem við höfum ekki. Við horfum á jákvæðu hliðar lífins og tökum ábyrgð á okkur sjálfum og okkar hugsunum. Það er alltaf hægt að þakka fyrir eitthvað.
Kærleiksvikan er liður í því að aðlaga skólaumhverfið að nemendum, en ekki aðlaga nemendur að skólaumhverfinu. Breytingar geta verið erfiðar fyrir suma nemendur og breytingar eru eitthvað sem mannfólk kynnist í gegnum allt lífið. Að læra að takast á við breytingar, stórar sem smáar, er mikilvægt veganesti fyrir nemendur út í lífið.
Mætum því með opinn hug fyrir vikunni. Kennarastarfið er tilraunastarf og við erum ekki hrædd við að prófa nýja hluti. Við hlökkum til þess að sjá niðurstöður þessarar tilraunar!
Kærleiks- og þakkarkveðjur