Fimmtudaginn 12. júní fer leikskólinn í sína árlegu sumarferð.  Ferðaáætlunin er nú endanlega ákveðin.  Farið verður norður á Strandir  í fjöruna norður af Þorpum (ekki langt frá Hólmavík).  Lagt verður af stað upp úr kl. 9:00.
  
Fyrsti áfangastaður er Sauðfjársetrið á Ströndum. Litið verður á safnið, skoðaðir heimalingar og hænur. Snæddir ávextir og salernisaðstaðan nýtt áður en farið verður í fjöruna.
  
Mjög mikilvægt er að klæða sig eftir veðri, með auka sokka.
  
Nesti, sem Katrín er svo væn að útbúa fyrir okkur; pizzasnúða, safa og ávexti, verður tekið með í bílana.
  
Þegar komið er til baka verður farið í leiki á leikskólalóðinni. Inga Heiða ætlar að lána leikskólanum gæfa hesta; þá Fönix og Lubba, og verður teymt undir þeim börnum sem það vilja.
  
Að leik loknum mun foreldrafélagið grilla fyrir okkur.
  
Þó svo foreldrar komist ekki í ferðina er allir velkomnir í leik og grill. Reiknað er með að vera komin til baka milli kl. 13.00 og 13.30.
  
Starfsfólk leikskólans