| 
         Christine á Skörðum er með landnámshænur.  Hún var svo væn að koma með útungunarvél og egg í leikskólann.
 
          Núna bíða börn og starfsfólk  spennt eftir ungum. Í gær voru eggin gegnumlýst og gátu börnin þá séð æðar og fleira inn í egginu. Það reyndist mjög spennandi að fylgjast með þessu.
          
          Það tekur 21 dag fyrir egg að ungast út svo nú er búist við þeim fljótlega eftir páska. | 

