Á dögunum kom nýtt hljóðkerfi í alrými skólans, sem jafnframt er félagsrými nemenda. Kerfið verður notað á uppákomum á vegum skólans; t.d. tónleikum og skemmtunum. Einnig nýtist kerfið í hléum eldri nemenda í skólanum til að hlusta á tónlist. Kerfið kemur einnig til með að verða nýtt í félagsstarfi skólans, t.d. þegar haldin eru diskótek.
Á myndinni sjást tæknimenn nemendafélagsins við nýja hljóðkerfið.
Á myndinni sjást tæknimenn nemendafélagsins við nýja hljóðkerfið.