Á námskeiðsdeginum þann 23. maí næstkomandi er nemendum skipt upp í hópa, sem sækja ákveðin námskeið eða fræðslu. Hér í skjalinu fyrir neðan er skipulag dagsins. Hefðbundin stundatafla er lögð til hliðar en skólaakstur verður með óbreyttu sniði. Allir nemendur verða í Búðardal þennan daginn. Athugið að samkvæmt veðurspá verður kalt úti, en nemendur eru í sumum tilvikum úti hluta dagsins. Allir þurfa því að vera klæddir eftir veðri.