Elsku foreldrar og forráðamenn barna í Auðarskóla öllum,
Við í Auðarskóla viljum þakka Sigurlaugu fyrir heimsóknina í gær (26. janúar) og fyrir þátttöku allra foreldra sem gátu gefið sér tíma til að mæta. Á skólaráðsfundi 14. nóvember síðastliðinn var rætt mikilvægi þess að efla samstarf skóla og heimilis þegar kemur að lestrarkennslu og tryggja að bæði starfsfólk og foreldrar hafi sameiginlega þekkingu á áhrifaríkum leiðum til að styðja við lestrarnám barna. Rannsóknir á heimalestri hafa sýnt að markviss inngrip sem fela í sér fræðslu og leiðsögn til foreldra hafa marktæk áhrif á framfarir barna í lestri samanborið við að engin slík íhlutun fari fram. Árangurinn er mestur þegar foreldrum/forráðamönnum er veitt hagnýt leiðsögn um hvernig þeir geti hlustað á barnið lesa, stutt það með uppbyggilegum hætti og unnið með einfaldar lestraræfingar í daglegu lífi.
Jafnframt er mikilvægt að viðurkenna að margir foreldrar/forráðamenn finna til óöryggis í tengslum við heimalestur. Það er algeng og fullkomlega skiljanleg upplifun í ljósi þess að foreldrar/forráðamenn fá takmarkaða kennslu í þeim þáttum sem liggja að baki lestrarfærni. Það er því fremur ósanngjörn krafa á foreldra/forráðamenn að sinna þessu hlutverki án þess að þeim standi til boða viðeigandi fræðsla og leiðsögn.
Til að mæta þessum vanda og styðja foreldra/forráðamenn í þessu mikilvæga hlutverki skipulagði Foreldrafélag Auðarskóla lestrarkennslufræðslu sérstaklega miðaða að foreldrum/forráðamönnum:
Hún Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir, læsisfræðingur, kennari og klínískur atferlisfræðingur hitti foreldra og fjallaði meðal annars um hvernig foreldrar/forráðamenn geta:
- stutt við lestur barna sinna heima,
- skipulagt heimalestrarþjálfun,
- aukið hvata barna til lesturs.
Við þetta má bæta að allt starfsfólk grunnskólans fékk líka fræðslu um lestrarkennslu fyrr þennan sama dag.

