Sveitarfélagið Dalabyggð hyggst styðja við bakið á nemendum sem fara í háskólanám í leikskólakennarafræðum.       Um er að ræða margþættan stuðning:– laun í staðbundnum lotum og æfingakennslu í leikskólum– eingreiðslur (námsstyrkir) tvisvar á skólaárinu– aðgangur að tölvukerfum Auðarskóla og Office 365– aðgangur að vinnu- námsaðstöðu í skóla; þrentun, ljósritun, interneti og fl.Stefnt er að því að ná saman nokkrum hópi nema sem gæti verið í þessu saman og notið stuðnings hvers annars.   Þeir sem hafa áhuga hafi samband við Eyjólf Sturlaugsson skólastjóra í síma 899 7037 eða á netfangið eyjolfur @audarskoli.is.   Umsóknarfrestur í leikskólakennaranám rennur út 5. júní næstkomandi.
Reglur Dalabyggðar um stuðning við leikskólakennaranám
  
Reglur Dalabyggðar um stuðning við leikskólakennaranám
