Sýning á verkum nemenda 10. bekkjar verður í Stjórnsýsluhúsinu frá og með deginum í dag og fram yfir kosningar.Sýningin ber heitið ,,árstíðirnar fjórar“ og áttu nemendur að túlka tré sem sýnir þær.Hvetjum alla til að kíkja við.
Smiðjuhelgi
Nemendur elsta stigs tóku þátt í smiðjuhelgi dagana 5. – 6. október sem haldin var á Kleppjárnsreykjum. Nemendur völdu sér smiðju og í boði var: björgunarsveit förðun dans leiklist mótórhjóla/smávélaviðgerðir sundknattleikur sirkus Auk okkar nemanda tóku þátt nemendur frá Grunnskóla Borgarfjarðar, Reykhólaskóla og Laugagerðisskóla. Nemendur voru almennt ánægðir með þessa ferð.
Tónfundur tónlistardeildar Auðarskóla
Á fimmtudaginn 18. október verður tónfundur í Auðarskóla. Hann verður eins og undanfarin skipti í efra holi grunnskólans og hefst klukkan 13:30. Áætlaður er klukkutími fyrir nemendur til að láta ljós sitt skína við spilamennsku og söng. Við viljum góðlátlega benda fólki á að sitja út tónfundinn af virðingu við þá nemendur sem koma fram.
Mikilvægt fyrir alla foreldra/forráðamenn – Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla
Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla verður haldinn í grunnskólanum mánudaginn 22. október kl. 17:30. … Dagskrá: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara. 2. Fráfarandi stjórn gerir grein fyrir starfi síðasta starfsárs og fjárhagslegri stöðu félagsins. 3. Fulltrúar í skólaráði gera grein fyrir starfi síðasta starfsárs. 4. Lagabreytingar. 5. Kosningar. Stjórnarkjör, og kosning fulltrúa í fræðslunefnd og skólaráð ef þörf er á. 6. Önnur …
Leikskólabörn heimsækja fyrirtæki í Búðardal
Nemendur á Tröllakletti hafa farið í vettvangsheimsóknir í nokkur fyrirtæki í haust. Við höfum fengið æðislegar móttökur. Nemendunum finnst mjög gaman að fá að sjá á bakvið tjöldin og hvernig starfið fer fram hjá fyrirtækjum hér í Búðardal. Þau munu halda áfram að fara í fyrirtæki og er stefnan sett á Vegagerðina næst. Fyrirtækin sem við höfum farið í eru: …
Foreldraviðtalsdagur
Á miðvikudaginn 10. október verður foreldraviðtalsdagur í grunnskóladeild Auðarskóla. Enginn kennsla er þennan dag né heldur skólaakstur. Foreldrar munu fá sent frá umsjónarkennurum sinna barna hvenær dagsins þau eiga að mæta til viðtals.
Skólasetning Auðarskóla
Skólasetning Auðarskóla fer fram miðvikudaginn 22. ágúst í Dalabúð og hefst athöfnin klukkan 10:00.Klukkan 10:30 verður kynning fyrir nemendur yngsta stigs, klukkan 10:55 verður kynning fyrir nemendur á miðstigi og klukkan 11:20 fyrir nemendur elsta stigs. Gert er ráð fyrir að foreldrar grunnskólabarna mæti á skólasetninguna og kynningarnar þeirra stiga sem þeirra börn eru á. Einnig minnum við á:Eins og í fyrravetur …
Vortónleikar tónlistardeildar Auðarskóla
Á þriðjudaginn 15. maí n.k. verða haldnir hinir árlegu vortónleikar tólistardeildar Auðarskóla. Tónleikarnir fara fram í Dalabúð klukkan 16:00. Nemendur koma fram og sýna listir sínar og viljum við vinsamlega benda áhorfendum á að sitja út tónleikana af virðingu við flytjendur.
Skólasetning Auðarskóla
Skólasetning Auðarskóla fer fram miðvik udaginn 22. ágúst í Dalabú ð og hefst athöfnin klukkan 10:00. Klukkan 10:30 verður kynning fyrir nemendur yngsta stigs, klukkan 10:55 verður kynning fyrir nemendur á miðstigi og klukkan 11:20 fyrir nemendur elsta stigs. Gert er ráð fyrir að foreldrar grunnskólabarna mæti á skólasetninguna og kynningarnar þeirra stiga sem þeirra börn eru á. Einnig minnum …