Leiksýning á vegum foreldrafélagsins

admin Fréttir

Mánudaginn 17. nóvember mun Möguleikhúsið sýna leikritið „Langafi prakkari“ eftir Pétur Eggerz. Foreldrafélag Auðarskóla stendur fyrir sýningunni og byrjar hún klukkan 10:30 í Dalabúð.  Sýningin er ætluð börnum í 1. – 4. bekk grunnskólans og nemendum úr leikskólanum.  Börnin eru í umsjón starfsfólks skólans en foreldrar eru velkomnir með á sýninguna ef þeir vilja.

Skógræktarstarf í Auðarskóla

admin Fréttir

Auðarskóli hefur til umráða svæði austan við Búðardal, ofan við Rarikhúsið, til þess gróðursetja trjáplöntur.  Yrkja – sjóður æskunnar til ræktunar landsins er sjóður sem úthlutar trjáplöntum til grunnskólabarna. „Markmið sjóðsins er að kosta trjáplöntun íslenskra skólabarna á grunnskólastigi á ári hverju.“ Verkefninu er á þennan hátt ætlað að kynna mikilvægi skógræktar og ræktunar almennt fyrir unga fólkinu í landinu …

Stóra upplestrarkeppnin

admin Fréttir

Stóra upplestrarkeppnin í Auðarskóla fór fram í gær.  Það voru nemendur í 7. bekk skólans sem kepptu í tveimur umferðum.  Sigurvegarar voru þau Erna Hjaltadóttir og Ólafur B. Indriðason og verða þau keppendur skólans í Stóru upplestrarkeppni samstarfsskólanna á Vesturlandi. Varamaður þeirra verður Sigrún Ó. Jóhannesdóttir.  Myndin er af sigurvegurum þremur og formanni dómnefndar; Önnu Eiríksdóttur.

Af leikskólamálum

admin Fréttir

Inntaka 12 mánaða barna á leikskólann hófst í byrjun október og hefur gengið vel.  Framkvæmdir á leikskólalóðinni vegna þessa eru komnar á góðan rekspöl en þeim er ekki lokið.  Þá eru ýmsar breytingar á skipulagi innra starfsins að taka á sig mynd í kjölfar þessara breytinga.  Búðast má við að það taki leikskólann nokkra mánuði í viðbót að aðlaga starfsemi …

Netnotkun barna og unglinga

admin Fréttir

Fyrirlestur verður  í Dalabúð um netnotkun barna og unglinga þriðjudaginn 29. október kl 20:00 Guðberg K. Jónsson verkefnastjóri hjá SAFT (Samfélag, fjölskylda og tækni) mun flytja erindið ‘Internetið: Jákvæð og örugg notkun barna og unglinga’.  Internetið er frábær upplýsingaveita og tæki til samskipta en þar felast einnig ýmsar hættur sem mikilvægt er fyrir foreldra að þekkja og gera sér grein …

Breytt félagslíf í Auðarskóla

admin Fréttir

Þær breytingar urðu nú í vor að til starfa í Dalabyggð tók íþrótta- og tómstundafulltrúi.  Við þau tímamót færist allt félagslíf sem tengist starfi félagsmiðstöðva af skólanum yfir á hið nýja embætti.  Um er að ræða allt sem viðkemur Samfés og opnu húsi á miðvikudagskvöldum.Auðarskóli verður engu að síður með félagslíf, en með breyttu sniði. Í vetur verður farið af …

Ljósmyndavalið 

admin Fréttir

Í ljósmyndavali kynnast nemendur eigin myndavélum og fá tækifæri til að læra á og nota DSLR vél skólans.  Þá verður áhersla lögð á að skilja undirstöðu ljósmælingar þar sem unnið er með hraða, ljósop og ISO. Einnig verður farið í myndbyggingu, mismunandi nálgun á viðfangsefnum, myndvinnslu o.fl. Unnið verður með þemu þar sem nemendur þurfa að leysa ýmis verkefni og …