Í gær for fram lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar á vegum samstarfsskólanna. Keppnin var haldinn í sameinuðum grunn- og leikskóla í Hvalfjarðarsveit. Alls voru það 12 keppendur í sjöunda bekk, frá fimm skólum, sem reyndu með sér.
Fyrir hönd Auðarskóla kepptu þeir Guðmundur Kári þorgrímsson og Tómas Andri Jörgenson. Báðir stóðu þeir sig með stakri prýði í keppninni. Í heild var upplestur afar góður og keppnin því jöfn. Það tók dómnefnd nokkurn tíma að úrskurða um úrslit og á meðan gæddu gestir sér á veitingum. Þegar úrslit voru gerð kunn kom í ljós að Gumundur Kári hreppti önnur verðlaun keppninnar. Er honum hér óskað til hamingju með árangurinn. |