Góður árangur

admin





Picture

Auðarskóli tók þátt í verkefninu Landsbyggðarvinir í Reykjavík og nágrenni þetta árið sem undangengin ár. Verkefni þetta gengur úr að koma með hugmyndir sem gefa fyrirheit um betri heimabyggð. Síðustu þrjú ár hafa nemendur staðið sig með afbrigðum vel og ávallt fengið verðlaunasæti. Að þessu sinni lenti skólinn í þriðja sæti og var það ritgerð Elínar Huldar Melsteð Jóhannesdóttur 9. bekk sem fékk þessi verðlaun og er hún vel að þeim komin. Það kom fram hjá formanni dómnefndar að ekki hafi verið auðvelt að velja þær ritgerðir (hugmyndir) sem ættu að fá verðlaun en var ritgerð Elínar ein af 21 ritgerð sem dómnefnd fór yfir að þessu sinni. Verðlaunaathöfnin fór fram í Reykjavík og var það Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarráðherra ásamt Unni Birnu Vilhjálmsdóttur sem sáu um veita verðlaunin.

Þetta er þriðja árið í röð sem nemendur í Auðarskóla vinna til verðlauna á þessum vettvangi og er það trúlega einsdæmi.  Vinna nemenda í verkefninu fer fram í nýsköpunartímum, sem hafa verið á stundatöflu elstu bekkja skólans frá stofnun hans 2009.  Kennarar í nýsköpun hafa verið Herdís Erna Gunnarsdóttir og Skjöldur Skjaldarson.
Á myndinni er Elín fyrir miðju.