Nú hafa verið keyptir nýir sófar í efra rými grunnskólans í Búðardal. Sófarnir leysa af hólmi gamalt sófasett, sem elstu menn muna vart hvernær var keypt. Var það mál manna að löngu væri orðið tímabært að bæta setaðstöðu nemenda og endurnýja sófana.
Í framhaldinu verður unnið að því að setja upp hljóðkerfi í rýminu þannig að auðvelt verði að spila þar tónlist, vera með fundi, skemmtanir og aðrar uppákomur. Markmiðið er að efra rýmið verði fjölnotarými í framtíðinni.