Námsvaka elsta stigs

Auðarskóli Fréttir

Í sólarhring frá kl. 12:10 þann 20.2 til kl.  12:10 21.2 þreyttu nemendur elsta stigs námsvökuna. Námsvakan er fastur liður í fjáröflun stigsins fyrir Danmerkurferðinni sem farin verður í vor. Nemendum var skipt í tvo hópa rauðan og bláan og skiptust hóparnir á að vera inní kennslustofu og læra annarsvegar og hinsvegar að vera í pásu eða hvíld. Mikil stemming …

Kærleiksboltinn rúllar um Auðarskóla

Auðarskóli Fréttir

Nemendur í 1.-4. bekk hafa unnið saman kærleiksverkefni þar sem hver og einn nemandi býr til bolta sem hægt er að opna og inní honum eru jákvæð skilaboð okkar hinna í Auðarskóla og minna okkur á kraftinn í kærleikanum.  

Jólamyndasamkeppni

Auðarskóli Fréttir

Jólamyndasamkeppni er fastur liður í aðdraganda jólanna í Auðarskóla. Nemendur teikna jólamynd á A4 blað, myndin skal vera teiknuð fríhendis og eru jólin viðfangsefni þátttakenda. Þriggja manna dómnefnd fer yfir myndirnar og velur eina mynd af hverju stigi sem sigurvegara. Dæmt er út frá framkvæmd, hugmyndaflugi, sköpun og jólaanda myndarinnar. Dómnefndin í ár er skipuð Bjarka sveitastjóra, Maríu Hrönn myndmenntakennara …

Líflegt skólastarf

Auðarskóli Fréttir

Líflegt skólastarf og skapandi samvera í Auðarskóla Haustið hefur verið viðburðaríkt hjá nemendum Auðarskóla, sem hafa tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum af krafti. Nýverið var haldið kaffihúsakvöld sem tókst einstaklega vel. Þar skipulögðu nemendur atriði, bökuðu kökur, sinntu tæknimálum og miðasölu, auk þess að gleðja gesti með skemmtiatriðum og happdrætti. Skólinn þakkar samfélaginu fyrir frábæran stuðning. Danssýning nemenda 29. nóvember …

Syndum fyrir hreinu vatni

Auðarskóli Fréttir

Í nóvember tóku nemendur Auðarskóla þátt í verkefninu „Syndum fyrir hreinu vatni“ á vegum ÍSÍ. Nemendur nýttu um 10-20 mín í öllum sundtímum mánaðarins til að safna sundferðum. Sá tími var jafnframt nýttur til að miðla fróðleik um vatnið okkar og hvað börn og ungmenni í Afríku hafa mörg hver lítinn aðgang að vatni. Nemendur Auðarskóla stóðu sig með prýði …

Nemendaþing í Auðarskóla

Auðarskóli Fréttir

Þann 25. nóvember og 27.nóvember var haldið nemendaþing í Auðarskóla með öllum nemendum í 4.-10. bekk. Nemendum var skipt í 5-6 manna hópa þvert á aldur og lagðar fyrir spurningar sem snérust um almenna líðan og samskipti í skólanum. Hvernig þau meta samskiptin og hvaða leiðir þau vilja fara til að bæta þau. Þau svöruðu einnig spurningum sem kemur að …

Heimsókn á Silfurtún

Auðarskóli Fréttir

1.-3. bekkur hefur síðustu vikur verið að vinna með kærleikann. Þau lásu bókina um regnbogafiskinn og unnu verkefni tengt sögunni. Í síðustu vikur fóru þau síðan í heimsókn á Silfurtún og gáfu heimilisfólki kærleiksfiskinn með kærleikskveðju frá nemendum, sögðu þeim stuttlega frá verkefninu um kærleikann sem nemendur voru að vinna. Í framhaldinu er ætlunin að fara aftur í heimsókn, spjalla  …

Allt nema skólataska

Auðarskóli Fréttir

Í dag voru nemendur með allt nema skólatöskudag. Það gengur þannig fyrir sig að nemendur mega nota hvað sem er í stað skólatösku og var gaman að sjá hugmyndaflug nemenda. Ruslafötur, hrærivélaskál, koddaver, kúahorn og annað frumlegt fengu því nýtt hlutverk í dag og leystu skólatöskurnar af hólmi. Hér að neðan er sýnishorn af skólatöskum dagsins.

Alþjóðadagur læsis 8. september

Auðarskóli Fréttir

Alþjóðadagur læsis er 8. september. Frá árinu 1965 hafa Sameinuðu þjóðirnar helgað 8. september málefnum læsis. Læsi hefur verið skilgreint sem: Lestur – Hlustun – Tal – Ritun. Við í Auðarskóla hvetjum alla Dalamenn til að efla læsi hjá sér og/eða sínum börnum. Það má gera til dæmis með því að lesa upp, segja sögur, fara með ljóð eða nota …