Vortónleikar tónlistardeildar Auðarskóla

admin Fréttir

Á þriðjudaginn 15. maí n.k.  verða haldnir hinir árlegu vortónleikar tólistardeildar Auðarskóla. Tónleikarnir fara fram í Dalabúð klukkan 16:00. Nemendur koma fram og sýna listir sínar og viljum við vinsamlega benda áhorfendum á að sitja út tónleikana af virðingu við flytjendur.

Reykir

admin Fréttir

​Við í sjöunda bekk erum „nýkomin“ heim frá Reykjum. Á námskeiðunum var gaman og flestir voru að kynnast fleiri krökkum. Okkur fannst flestum skemmtilegast í náttúrufræði og sögu og þá sérstaklega þegar sagan af Gretti var sögð. Byggðasafnið kom líka sterkt inn og hákarlasögurnar fræðandi. Frítíminn var skemmtilegur. Stefán og Daníel voru snyrtipinnar ferðarinnar og fóru í sturtu á hverjum …

Kaffi og með því – mikilvægt fyrir alla foreldra/forráðamenn

admin Fréttir

Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla verður haldinn í grunnskólanum þriðjudaginn 26. september kl. 17:30.…Dagskrá:1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.2. Fráfarandi stjórn gerir grein fyrir starfi síðasta starfsárs og fjárhagslegri stöðu félagsins.3. Fulltrúar í skólaráði gera grein fyrir starfi síðasta starfsárs.4. Lagabreytingar.5. Kosningar.  Stjórnarkjör, og kosning fulltrúa í fræðslunefnd og skólaráð ef þörf er á.6. Önnur mál.            Mikilvæg málefni er varða alla foreldra/forráðamenn.Komin eru …

Leikskólabörn sungu við opnum Kjörbúðarinnar

admin Fréttir

​Á föstudaginn 13. október 2017 var Kjörbúðin í Búðardal opnuð. Krakkarnir á Tröllakletti tóku þátt í opnuninni með söng þar sem þau fluttu tvö lög í lok ræðuhalda. Krökkunum fannst mjög gaman og spennandi að fá að vera þátttakendur í þessari opnun. 

Dagur eldri borgara

admin Fréttir

Kæru Dalamenn 60 ára og eldri Verið velkomin í leikskólann okkar þriðjudaginn 21. nóvember.Það verður opið hús milli kl. 10 og 11í tilefni af degi eldri borgara.Boðið verður upp á hressingu,við tökum kannski lagið samanog eigum góða samverustund. Hlökkum til að sjá ykkur Börn og starfsfólk leikskóla Auðarskóla

Upplestrarkeppni Auðarskóla

admin Fréttir

16. mars fór fram, í Auðarskóla, undankeppni fyrir Stóru Upplestrarkeppnina. Keppnin er ætluð nemendum 7. bekkjar og er undirbúningur nokkur fyrir keppni sem þessa og allir eru hvattir til að taka þátt í verkefninu á einhvern hátt. Æfingatímabilið er nokkrar vikur og æfingum fjölgar eftir því sem líður á. Við lok þessa tímabils er ánægjulegt að sjá þær framfarir sem …

Foreldraviðtalsdagur

admin Fréttir

Á miðvikudaginn 10. október verður foreldraviðtalsdagur í grunnskóladeild Auðarskóla.  Enginn kennsla er þennan dag né heldur skólaakstur. Foreldrar munu fá sent frá umsjónarkennurum sinna barna hvenær dagsins þau eiga að mæta til viðtals.

Vorhátíð og skólaslit Auðarskóla – 1. júní 2016

admin Fréttir

Á vorhátíð má gjarnan klæðast furðufötum í tilefni dagsins. Hafa ber þó í huga að hluti dagskrár er úti og því þarf einnig að klæða sig eftir veðri.    08.30 – 09.50    Nemendur inni í umsjá umsjónarkennara.     09.50 – 10.10    Morgunmatur    10.10 –  11.40    Útileikir: Fimm stöðvar verða í gangi allan tímann við skólann:                      …