Miðstig Auðarskóla er núna í vetur í samstarfsverkefni í enskunámi með 18 öðrum löndum. Í vetur munu nemendur leysa margskonar og fjölbreytt verkefni sem hluta af enskunáminu. Samstarfslöndin okkar eru öll með annað móðurmál en ensku og mjög mismunandi getu í ensku. Sumir notast meira að segja við annað letur. Verkefnum er skilað rafrænt vefsíðu Evrópuráðsins – ETwinning. Fyrsti hlutinn …
Tækni lota hafin
Í dag 9. október hefst vinna í nýrri samþættingarlotu á öllu grunnskólastiginu. Nemendur vinna margvísleg verkefni með það að marki að auka hæfni til að beita gagnrýnu hugarfari og greina upplýsingar. Áherlsan er á ábyrga borgarar í netvæddu samfélagi og hvernig við berum öll ábyrgð á því saman. Unnið er eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu Þjóðanna og sérstaklega unnið með markmið 1 …
Nýir rekstraraðilar taka við mötuneytinu
september síðastliðin tók Vínlandssetrið ehf. við rekstri á mötuneyti skólans. Þar eru þrír starfsmenn sem sjá um starfsemina. Ragga, Justyna og Szymon Fjórir nemendur á miðstigi fóru á stúfanna og tóku viðtal við Röggu og Justynu. Viðtalið má lesa hér að neðan. Róbert Orri Viðarsson tók viðtalið, Nadía Rós Arnardóttir var tæknimaður, Aðalheiður Rós Unnsteinsdóttir og Jökull Sigurðsson sömdu spurningar. …
Smiðjuhelgi framundan hjá unglingastigi
Fyrri smiðjuhelgin fer fram núna næstkomandi föstudag og stendur til laugardags. Br0ttför kl 13 frá Auðarskóla. Fjölbreyttar smiðjur í boði, nemendur velja sig í smiðju í dag og fá niðurstöðu um hvaða smiðju þau fá seinna í vikunni. Hér má sjá lista yfir smiðjur í boði að þessu sinni Dans smiðja Í danssmiðjunni verður unnið með líkamann sem verkfæri og …
Skipulagsdagar í næstu viku
Skipulagsdagur í grunnskólanum næstkomandi mánudag 2. október skólabílar ganga ekki þann dag. Leikskólinn verður opinn. 3. október Foreldraviðtalsdagur Auðarskóla í leik- og grunnskóladeild. Foreldrar fá fundarboð með tímasetningu á sínu viðtali í tölvupósti á næstu dögum. Ákveðið var að halda áfram að þróa nemendastýrð viðtöl í grunnskólanum líkt og síðasta skólaár. Nemendur mæta í viðtalið með sínum forráðamönnum.
Vel heppaður viðburður hjá Foreldrafélaginu
Foreldrafélagið stóð fyrir haustfagnaði leikskólabarna Auðarskóla í Dalabúð þann 21. september síðastliðinn. Viðburðurinn var vel sóttur af börnum og foreldrum. Blaðrarinn kíkti í heimsókn og bjó til blöðrudýr fyrir alla sem vilu, hoppukastali settur upp inn í sal, léttar veitingar frammi og listastöð sem hægt var að lita myndir. Frábært framtak hjá Foreldrafélaginu.
Haustfagnaður leikskólabarna í Auðarskóla
Fimmtudaginn 21. september kl 16:00 verður smá haustfagnaður í Dalabúð fyrir leikskólabörnin og foreldra þeirra. Eldri systkini mega að sjálfsögðu fylgja með. Við ætlum að skemmta okkur saman stutta stund, foreldrar og börn. Við hlökkum til að sjá sem flesta. Einnig væri gott ef foreldrar sjái sér fært að aðstoða við frágang eftir að fagnaðinum er lokið. Margar hendur vinna …
Frábær dagur á Miðstigsleikum
Miðstigsleikar fóru fram á Skallagrímsvelli í Borgarnesi þann 13. september síðastliðinn í blíðskaparveðri. Leikarnir eru samstarfsverkefni nágrannaskólanna Auðarskóla, Grunnskóla Borgarfjarðar, Grunnskólans í Borgarnesi, Heiðarskóla og Reykhólaskóla. Þar koma nemendur saman úr 5., 6., og 7. bekk og gera sér glaðan dag og keppa í hinum ýmsu greinum. Keppt var í fótbolta stúlkna og drengja, kúluvarpi, 60 metra hlaupi, langstökki og 600 …
Símafrí í Auðarskóla
Símafrí í Auðarskóla heldur áfram eins og undanfarin ár. Nú hafa verið sett upp um skólann skýr plaköt til útlistingar á fríinu, hvar eiga nemendur að geyma símann á skólatíma og einnig verklag um viðurlög gleymi nemendur sér. Það er okkar trú sem og foreldrasamfélagsins að símafrí geri börnum gott, hjálpumst að við halda Auðskóla símafríum á skólatíma. Hér …