Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla verður haldinn í grunnsskólanum kl. 20.00 mánudaginn 9.september næstkomandi.
Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Fráfarandi stjórn gerir grein fyrir starfi síðasta starfsárs og fjárhagslegri stöðu félagsins.
3. Fulltrúar í skólaráði gera grein fyrir starfi síðasta starfsárs.
4. Lagabreytingar, ef ástæða þykir til.
5. Kosningar. Stjórnarkjör, kosning fulltrúa í fræðslunefnd og kosning tveggja fulltrúa í skólaráð.
6. Önnur mál.
Foreldrafélag Auðarskóla er sameignilegt foreldrafélag fyrir leik- og grunnskóla. Foreldrar eru hvattir til að mæta.