Allt nema skólataska

Auðarskóli Fréttir

Í dag voru nemendur með allt nema skólatöskudag. Það gengur þannig fyrir sig að nemendur mega nota hvað sem er í stað skólatösku og var gaman að sjá hugmyndaflug nemenda.

Ruslafötur, hrærivélaskál, koddaver, kúahorn og annað frumlegt fengu því nýtt hlutverk í dag og leystu skólatöskurnar af hólmi. Hér að neðan er sýnishorn af skólatöskum dagsins.