Bætt heimabyggð- minni sóun

Auðarskóli Fréttir

Nemendur Auðarskóla hafa undanfarnar vikur verið að skoða bætta heimabyggð og hvað má gera til að bæta hana fyrir íbúa, náttúruna og umhverfið okkar.

1.-3. bekkur tók fyir matarsóun í mötuneyti skólans og lagðist í rannsóknarvinnu. Þau viktuðu það sem var hent eftir hvern matartíma í nokkra daga. Nemendur skiptust á að vikta ruslið. Það kom þeim á óvart að mest var hent af mat þegar það var sérstaklega góður matur eins og kjúklingahamborgarar eða taco. Einnig sáu nemendur að suma morgna var hent nærri 2. líterum af mjólk sem gerir um 20 líterum á mánuði !

Nemendur tóku eftir því að aðrir nemendur byrjuðu að veita þessu eftirtekt og reyndu að hugsa betur um hvað þeir settu á diskinn og pössuðu að henda sem minnst. Nemendur komu síðan með nokkrar tillögur um hvernig er hægt að minnka matarsóun og reyna að nýta afganganna betur. Þau sömdu bréf saman og ætla að færa þeim Justynu og Simoni í eldhúsinu.

4.-5. bekkur tók einnig að sér að skoða matarsóun og þau komu með tilgátu um að meira sé sóað í Reykjavík heldur en í Búðardal. Haft var samband við 5. bekk í einum skóla í Reykjavík og þau beðin um að taka þátt í samanburðarrannsókn, þau voru til í það.  Allir áttu að vikta sóun heima hjá sér og nota tölurnar frá 1.-3 bekk. Niðurstöðurnar komu einnig á óvart.

Skólinn í Reykjavík henti að meðaltali 9.8 kg sem gerir 68.8 gr á mann að meðaltali. Sóunin í Reykjavík er skv þessum niðurstöðum 38 x meiri en í Auðarskóla. Sóunin í Auðarskóla