Hjóladagur

Auðarskóli Fréttir

Hjóladagur Auðarskóla fór fram þann 19. maí og heppnaðist mjög vel. Veðrið var með besta móti og nutu nemendur þess að hjóla saman.

Leikskólinn hjólaði á skólalóðinni sinni og einhverjir nemendur fengu einnig að æfa sig í umferðareglum á gangstéttum Búðardals.

Slysavarnarfélagið og Lögreglan komu og hittu nemendur áður en lagt af stað á hjólin. Slysavarnafélagið yfirfór alla hjálma og stilltu þá rétt á nemendur.

Lögreglan kíkti á reiðhjólin og ræddi við nemendur um umferðaröryggi og hjálmaskyldu.

 

í grunnskólanum voru þrjár hjólaleiðir í boði

Búðardalshringur 2,2 km hjólað kringum Búðadal

Ræst kl 9:10 og 12:50

 

Ævintýrahringur- Laxárhringurinn 5 km

Hjólað niður Miðbraut- með fram fjörunni og á stígunum meðfram fjörunni- reiðstígurinn- undirbrúnna- uppí hesthúsahverfi og vestfjarðarvegur að Auðarskóla

Ræst kl 9:10 og 12:50

 

EXTREAM 20 km 

Búðardalur- Goddastaðir- yfir ánna á vaðinu þar fyrir neðan- Laxárdalsvegur- Búðardalur

fá nesti/hressingu eftir ánna það þarf að koma starfsmaður þar og taka á móti þegar þau koma yfir ánna og veita þeim einhverja hressingu.

Ræst kl 9:10

Einar og Atli kennarar hjóluðu með hópnum í löngu ferðinni og gekk hún mjög vel.