Þriðjudaginn 10. maí var hjóladagur í leikskólanum. Börnin komu með hjól með sér að heiman. Yngri börnin hjóluðu á leikskólalóðinni en þau eldri á grunnskólalóðinni. Allir hjóluðu og hjóluðu. Að sjálfsögðu voru eldri börnin með hjálma eins og vera bar.