Undanfarin þrjú ár hefur verið keyrður svo kallaður „multipower server í tölvuverinu“. Það þýðir að ein öflug tölva stýrir mörgum skjám og lyklaborðum. Í raun hefur undanfarið aðeins verið ein ofurtölva í verinu með 15 skjám, lyklaborðum og músum. Því er ekki að leyna að þetta kerfi hefur verið viðkvæmt og þungt í keyrslu og of oft haft hamlandi áhrif á kennsluna.
En nú er búið að uppfæra tölvuverið með 14 nýjum borðtölvum, Notast er við sömu skjái og lyklaborð en hver eining er nú sjálfstæð. Fyrir vikið er verið nú bæði stöðugra og kraftmeira. |