þann 21. maí síðasliðin fóru nemendur í 1.-7. bekk í skemmtileg vorferðalög.
1.-4. bekkur fóru að skoða Tröllagarðinn í Fossatúni og svo á
Búvélasafnið á Hvanneyri. Voru krakkarnir áhugasamir og skemmtilegir allan
tímann. Við viljum nota tækifærið og þakka foreldrafélaginu fyrir að styrkja
nemenedur til þess að fara þessa ferð. Og ekki síður viljum við þakka bílstjórunum Jóni Agli og Guðbirni fyrir aksturinn og alla hjálpina í ferðinni.
5.- 7.bekkur lenti í óvæntri ævintýraferð. Til stóð að fara í Gullborgarhelli en þegar komið var út á malarveginn fylltist rútan af ryki og bílstjóranum tókst ekki að loka nægilega fyrir loftgötin svo hætta þurfti því miður við. Úr vöndu var að ráða og þurfti að finna nýjan áfangastað í hvelli. Úr varð að við heimsóttum bændurnar á Dunki og fengum að knúsa kiðlinga og ganga niður Dunká. Margir voru viðbúnir sulli og kældu sig í ánni. Veðrið var með besta móti og því kærkomið að geta leikið í náttúrunni. Grilluðu pylsur og héldu síðan áfram á Erpsstaði þar sem allir fengu rjómaís, léku við dýrin eða í leiktækjum og þeir sem voru ekki búnir að fá nóg af sulli héldu því áfram.
Virkilega skemmtilegar ferðir báðar tvær sem fylla sannarlega í minningabanka barna og starfsmanna.