Kvenfélagið Fjólan kemur færandi hendi

admin

Tvær konur, þær Díana Ósk Heiðarsdóttir og Ragnheiður Jónsdóttur, úr Kvenfélaginu Fjólan komu færandi hendi hingað í skólann fimmtudaginn 7. apríl síðastliðinn. Þær færðu tónlistardeild Auðarskóla peningagjöf sem á að nýta á þann hátt sem stjórnendum finnst best henta í tónlistardeildinni. Starfsfólk Auðarskóla þakkar Kvenfélaginu Fjólan fyrir rausnarlega gjöf sem kemur sér vel. Á myndinni hér til hliðar má sjá Ólaf Einar Rúnarsson …

Árshátíð nemenda í Tjarnarlundi lokið

admin

Í gærkveldi héldu nemendur Auðarskóla í Tjarnarlundi sína árshátíð.  Þótt ekki séu nemendurnir margir var dagskráin fjölbreytt og skemmtileg.  Í útibúinu eru sjö strákar og ein stelpa og því lá beinast við að setja upp leikrit um Mjallhvíti og dvergana sjö.  Leikútgáfan var fjölbreytt og skemmtileg og þurftu leikarar að bregða sér í mörg gervi.  Fá upphafi til enda einkenndi …

Lokahátíð stóru upplestarkeppninnar

admin

Lokahátíð stóru upplestarkeppninnar fór fram í Leifsbúð í Búðardal í gær.  Alls mættu 11 keppendur frá eftirfarandi skólum; Auðarskóla, Heiðaskóla, Laugagerðisskóla, Grunnskólanum  Borgarnesi og Grunnskóla Borgarfjarðar.   Keppendur sem allir eru úr 7. bekk kepptu í þremur umferðum.  Allir stóðu upplesarnir sig vel og var úr vöndu að ráða hjá dómurum.  Sigurvegari að þessu sinni varð Harpa Hilmisdóttir  úr Borgarnesi (sjá …

Hundaleiðangur í leikskólanum

admin

Í vikunni fóru tveir elstu hóparnir á Álfadeild leikskólans í hundaleiðangur.  Leiðangurinn var farinn í tenglsum við hundaþema, sem verið er að vinna að.  Krakkarnir voru svo heppnir að hitta hundinn Millu (sjá mynd) sem leyfði þeim að knúsa sig og kjassa. Síðan lá leiðin með Ægisbrautinni og þar hittu þau siberian husky hundinn; Úlf.  Að lokum var farið í …

Skemmtilegri árshátíð Auðarskóla í Búðardal lokið

admin

Í gærkveldi fór fram árshátíð Auðarskóla í Búðardal.  Árshátíðin gekk ágætlega fyrir sig.   Allir nemendur grunnskóladeildarinnar í Búðardal komu fram í atriðum og stóðu sig með mikilli prýði.  Að þessu sinni voru óvenjulega mörg atriði frumsamin af nemendum, sem er skemmtileg viðbót í undirbúningsferlinu. Foreldar og vandamenn létu sig ekki vanta og fjölmenntu og voru gestir á öllum aldri. …

Laugafjör UDN

admin

Laugafjör verður haldið á Laugum í Sælingsdal  1. – 2. apríl næstkomandi.  Laugafjör er fyrir börn í 5. -10. bekk á svæði U.DN. Í þetta sinn ætlum við líka að bjóða 8.-10. bekk af svæði H.S.S. á Ströndum.  Það kostar 1500 kr. á mann.  Skráning er hjá Herdísi Reynisdóttur í  síma 434-1541  á kvöldin eða á netfanginu efrimuli@snerpa.is Skráningu þarf að ljúka …

Árshátíð grunnskóladeildar í Búðardal

admin

Þann 31. mars næstkomandi verður haldin árshátíð nemenda Auðarskóla í Búðardal.  Árshátíðin verður í Dalabúð og hefst kl. 18.00.   Þennan sama dag verður heimakstri nemenda flýtt um klukkustund og fara skólabílar frá Búðardal kl. 14.00.  Yngri nemendur (1. – 4. bekkur) hefja dagskrána og nauðsynlegt að þeir séu mættir aftur kl. 17.30 í Dalabúð til undirbúnings. Kaffiveitingar eru að lokinni …

Stóra upplestrarkeppnin

admin

Stóra upplestrarkeppnin var haldin í Auðarskóla í dag.   Alls voru keppendur átta að þessu sinni.  Keppendur stóðu sig afar vel og var keppnin óvenjulega tvísýn þetta árið.   Dómarar voru  Björn Stefánsson, Valdís Einarsdóttir og Guðrún María Einarsdóttir og áttu þau úr vöndu að ráða.   Að lokum voru valdir tveir þátttakendur til að keppa á lokahátíðinni ásamt einum …

Hannað með legókubbum

admin

Í dag fékk Auðarskóli  Jóhann Breiðfjörð í heimsókn í nýsköpunartíma hjá 9. og 10. bekk í Búðardal.  Jóhann kom með nokkur trog full af legókubbum af öllum gerðum.  Hann kynnti fyrir nemendum ýmsa möguleika og hafði meðferðis teikningar og leiðbeiningar. Það var ekki að sökum að spyrja að nemendur jafnt sem fullorðnir gleymdu sér alveg í 80 mínútur við hönnun …