Nemendafélag Auðarskóla ákvað í haust að safna fé handa Unicef. Markmiðið var að safna 100.000 kr. Söfnunin hófst formlega 18. nóvember og lauk þann 5. desember á kaffihúsakvöldi nemenda. Eftirfarandi vörður voru settar í söfnuninni til að gera hana skemmtilegri: Við 20.000 markið. Sindri Geir og Einar Björn fara með hár sitt í aflitun. Við 50.000 markið . Hlynur Snær …
Jóladagskráin
Á síðustu dögum fyrir jól er jólahátíðar minnst í stóru og smáu í Auðarskóla. Næstu daga eru helstu atburðir skólans sem tengjast jólum. Í dag 17. desember eru litlu jólin í leikskólanum . Að þessu sinni eru þau haldin í nýjum salarkynnum leikskólans kl. 15.30. Á morgun, þann 18. desember eru jólatónleikar tónlistarskólans . Verða þeir haldnir í Dalabúð kl. …
Forritun í Auðarskóla
Í Auðarskóla er kennd forritun í unglingdeild og er um nýung að ræða, sem farið hefur vel af stað. Á fimmtudaginn var tóku nemendur þátt í átakinu Hour of Code. Hér er um alþjóðlegt verkefni að ræða þar sem þátttakendur eru komnir yfir 10 milljónir á heimsvísu. Nemendur leystu 20 æfingar undir handleiðslu Mark Zuckerberg, Bill Gates og fleiri stórmenna …
Kaffihúsakvöldið
Fimmtudaginn 5. des. verður Kaffihúsakvöld Auðarskóla. Húsið opnar kl. 19:00 en skemmtunin byrjar kl. 19:30 í Dalabúð. Boðið verður upp á kakó og smákökur. Það verða skemmtiatriði sem eru samin og flutt af krökkum í 6.-10. bekk skólans. Einnig verður happdrætti með glæsilegum vinningum. Það kostar 600 kr. inn og einn happdrættismiði fylgir. Frítt er fyrir nemendur skólans og krakka …
Samræmdu könnunarprófin
Niðurstöður samræmdra könnunarprófa í Auðarskóla fyrir haustið 2013 eru eftirfarandi: 4. bekkur Meðaleinkunn Meðalröðun Íslenska 6,1 55 Stærðfræði 6,9 66 7. bekkur Íslenska 7,0 58 Stærðfræði 6,4 43 10. bekkur Íslenska 5,8 50 Enska 6,7 42 Stærðfræði B 60 Meðalröðun á landsvísu …
Piparkökubakstur
Fimmtudaginn 28. nóvember n.k. kl. 18:00 stendur foreldrafélag Auðarskóla fyrir piparkökubakstri í Dalabúð. Nemendur og foreldrar leik- og grunnskólans koma saman; skera út deig, baka og skreyta piparkökur. Öllum verður séð fyrir deigi, en vinsamlegast komið með kökukefli, útskurðarmót og glassúr .
Nemendafélagið safnar fyrir UNICEF
Tveir drengir í unglingadeild Auðarskóla fengu þá hugmynd fyrir nokkrum vikum að safna fyrir UNICEF. Nemendafélagið hefur verið að skipuleggja söfnunina undanfarið. Þar sem mikið keppnisskap er í unglingahópnum og hann alveg til í að gera eitthvað flippað var ákveðið að nota tækifærið til slíks í leiðinni. Dalamenn og fleiri hafa verið mjög duglegir að styrkja félagsstarf nemenda þegar þeir …
Dagur íslenskrar tungu
Sú hefð hefur skapast í Auðarskóla að haldið er upp á dag íslenskrar tungu með því að nemendur í 7. bekk fara yfir í leikskólann og lesa þar upp fyrir börnin. Þar sem dag íslenskrar tungu bar nú upp á helgi var það ekki fyrr en í morgun sem nemendur fóru og lásu fyrir leikskólabörnin. Eins og sjá má á …
Umferðafræðsla fyrir yngstu börnin
Nemendur á yngsta stigi og elstu nemendur í leikskólanum skemmtu sér vel þegar þeir horfðu á leikritið um Ellu umferðartröll sem sýnt var í leikskólasalnum í dag. Leikritið fjallaði um tröllastelpu sem þurfti að bregða sér til byggða og hittir Benna. Þau lentu í ýmsum ævintýrum í umferðinni og þá kom í ljós hvað mikilvægt er að kunna umferðarreglurnar. Börn og …
Góð heimsókn
Í dag urðum við þess heiðurs aðnjótandi að fá heimsókn frá Heiðaskóla í Hvalfjarðarsveit. Það voru 25 starfsmenn grunnskóla-deildar, sem mættu á svæið. Gestirnir skoðuðu skólann, fræddust um skólastarfið og spjölluðu við nemendur og starfsmenn. Skólarnir tveir eru um margt líkir. Þeir eru báðir samreknir og eru staðsettir í sveitarfélögum sem hafa svipaðan íbúarfjölda. Þeir geta því örugglega notfært sér …