Fyrstu vikur skólastarfsins

AuðarskóliFréttir

Starfið í grunnskólanum fer vel af stað svona í upphafi skólaárs og ánægjulegt að sjá áhugasama nemendur á öllum stigum.

Haustfundur foreldra fór fram þann 3. september síðastliðin og var mæting með ágætum. Góðar umræður og mikilvægur vettvangur fyrir foreldra til að koma saman og eiga spjall við kennara um nám barna sinna, skólagöngu og annað sem varðar börnin í nemendahópnum.

Nemendur á miðstigi fóru á Miðstigsleika í Borgarnesi hittu og kepptu við nemendur úr samstarfskólum Auðarskóla. Þar stóðu okkar nemendur sig mjög vel og komu kátir og glaðir heim eftir ferðina.

Stjórn nemendafélagsins Auðar hefur hafið störf og það verður áhugavert að sjá hvað þessi flotti hópur ætlar að gera í vetur fyrir félagslíf og skólabrag nemenda.

Gaman er að segja frá því að í skólann eru nú komin gæludýr FÖRUSTAFIR sem vekja mikla gleði. Við vonumst til að þeir fjölgi sér svo mikið að við getum haft nokkra í hverjum umsjónarhóp. Við þökkum íbúum Dalabyggðar kærlega fyrir að bregðast við óskum okkar og  að láta okkur í té fiskabúr en í þeim eru förustafir hafðir.

Við höldum áfram með þá góðu vinnu sem tíðkast hefur í Auðarskóla og gerum okkar til að gera góðan skóla enn betri.

Kv. Katrín Kristjánsdóttir