Íþróttavika Evrópu

AuðarskóliFréttir

Þann 23. september fengu nemendur í Auðarskóla kynningu á þremur íþróttum. Borðtennis, frisbígólf og frjálsar íþróttir. Allir nemendu fengu kynningu og tækifæri til að prófa þessar greinar undir handleiðslu þjálfara í hverri grein. Viðburðurinn var frá kl 9- 11 og hafði því áhrif á skóladaginn en nemendur voru almennt glaðir með þetta uppbrot og við þökkum Dalabyggð og UDN kærlega fyrir að bjóða nemendum uppá þetta. Viðburðurinn er liður í íþróttaviku Evrópu en á heimasíðu Dalabyggðar má sjá ítarlega dagskrá.