Vorhátíð og skólaslit Auðarskóla – 1. júní 2016

admin

Á vorhátíð má gjarnan klæðast furðufötum í tilefni dagsins. Hafa ber þó í huga að hluti dagskrár er úti og því þarf einnig að klæða sig eftir veðri. 08.30 – 09.50 Nemendur inni í umsjá umsjónarkennara. 09.50 – 10.10    Morgunmatur 10.10 –  11.40 Útileikir: Fimm stöðvar verða í gangi allan tímann við skólann: Tjaldað – Brúa læk – Stigvélakast – …

Jólatónleikum frestað

adminFréttir

Jólatónleikum tónlistardeildarinnar, sem vera áttu kl. 17.00 í dag, verður frestað vegna veðurs til 14.01.2016.Skólastjóri

Nemendafélagið með sölusíðu

adminFréttir

Nemendur á elsta stigi í Auðarskóla eru að fara í skólaferðalag til Kaupmannahafnar í vor.  Nemendafélagið er á fullu að safna fyrir ferðinni og nú eru í boði átta vörur, sem gætu komið sér vel fyrir jólin.  Til þess að allir geti verslað hvar sem er við nemendafélagið hefur verið opnuð sölusíða.  Hér er slóðin á sölusíðuna:http://netsofnun.is/Sofnun/Vorur/4605/0/Lokað verður fyrir söluna …

Gleðilegt nýtt ár

adminFréttir

Auðarskóli óskar öllum gleðilegs nýs árs með þökk fyrir liðin ár. Nokkrar breytingar eru í stofnuninni frá og með þessum áramótum þar sem Eyjólfur Sturlaugsson, sem verið hefur skólastjóri Auðarskóla frá stofnun hans árið 2009, lét af störfum sem skólastjóri nú um þessi áramót.  Settur skólastjóri þar til nýr skólastjóri hefur verið ráðinn er Þorkell Cýrusson (keli@audarskoli.is). Staðgengill skólastjóra er …

Dagur íslenskrar tungu

adminFréttir

Í tilefni dags íslenskrar tungu komu fjórir nemendur úr sjöunda  bekk og lásu fyrir leikskólabörnin. Heimsókn sem þessi er afar kærkomin og setur lit á daginn fyrir alla. Starfsfólk leikskólans

AFS Skiptinemar í Auðarskóla veturinn 2016-2017

adminFréttir

Þriðja árið í röð hýsir Auðarskóli í Dölum skiptinema á vegum skiptinemasamtakanna AFS sem gerir skólann okkar nú einn af stærri samstarfsaðilum AFS á Íslandi.  Ber því að fagna hversu opnar fjölskyldur í Dölum eru fyrir því að opna heimili sín fyrir unglingum frá ólíkum menningarheimum og gefa af sér til þessara fósturbarna sinna sem koma allstaðar að úr heiminum. …

Tónleikar

admin

​Nemendur unglingadeildar Auðarskóla standa fyrir tónleikum fimmtudagskvöldið 14. Apríl 2016 klukkan 20:00 í Dalabúð. ​ ​Viðburðurinn er liður í söfnun nemenda fyrir skólaferðalagi til Danmerkur. Aðgangseyrir 1.000 kr. ATH: enginn posi á staðnum

Nemendafélagið safnar fyrir Lúkas

adminFréttir

Núna á skírdag var hin árlega félagsvist haldin í Tjarnarlundi á vegum nemendafélagsins. Félagsvistin var ágætlega sótt og spilað var á 13 borðum sem gera 52 manns. Nemendafélagið ákvað að allur ágóði kvöldsins rynni í söfnun sjúkraflutningamanna fyrir hjartahnoðtækinu „Lúkasi“. Föstudaginn 25. apríl komu tveir sjúkraflutningamenn og tóku við 50.000 kr. auk þess sem þeir sýndu unglingadeildinni brot af tækjabúnaði …

Stærðfræðikeppni

adminFréttir

Hin árlega stærðfræðikeppni var haldin í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi 11. mars síðastliðinn. Haldin var undankeppni innan Auðarskóla og voru þrír nemendur sem fóru úr unglingadeildinni í keppnina einn úr hverjum árgangi. Keppendurnir voru Eydís Lilja, Benedikt Máni og Steinþór Logi. Allir keppendur Auðarskóla lentu í efstu 15 sætum innan síns árgangs en Steinþór Logi Arnarsson lenti í 2. Sæti.