Sveitarfélagið Dalabyggð hyggst styðja við bakið á nemendum sem fara í háskólanám í leikskólakennarafræðum. Um er að ræða margþættan stuðning:– laun í staðbundnum lotum og æfingakennslu í leikskólum– eingreiðslur (námsstyrkir) tvisvar á skólaárinu– aðgangur að tölvukerfum Auðarskóla og Office 365– aðgangur að vinnu- námsaðstöðu í skóla; þrentun, ljósritun, interneti og fl.Stefnt er að því að ná saman nokkrum hópi nema sem gæti verið í …
Nýr aðstoðarleikskólastjóri
Staða aðstoðarleikskólastjóra við Auðarskóla var auglýst í september og aftur í október þar sem enginn með fagmenntun hafði sótt um. Einn umsækjandi var að lokum um stöðuna; Herdís Erna Gunnarsdóttir og hefur hún verið ráðin tímabundið í stöðuna frá 1. nóvember. Herdís gengdi stöðu aðstoðarleikskólastjóra við leikskólann frá hausti 2012 fram í ársbyrjun 2014 í forföllum þáverandi aðstoðarleikskólastjóra. Hún hefur …
Tónfundir í tónlistarskólanum
Tónfundir á haustmisseri verða haldnir miðvikudaginn 28. kl 14.30 (5-10 bekkur) og fimmtudaginn 29. kl 14.30 (1-4 bekkur). Þar munu nemendur tónlistarskólans koma fram og spila og syngja fyrir foreldra og gesti. Fundurinn verður haldinn í sal tónlistarskólans og allir eru velkomnir. Kær kveðja Óli og Jan
Samvinna leik- og grunnskólans
Einu sinni í viku, á fimmtudagsmorgnum milli kl. 10.10 og 11.30 hittast nemendur 1. bekkjar og börn í elsta árgangi leikskólans. Samvinnan hófst formlega 17. sept. og var byrjað á því að kynnast skólanum. Við fórum því saman í skoðunarferð og heimsóttum kennara- og kennslustofur og hittum þar nemendur og kennara. Í framhaldinu höfum við farið í allskyns skemmtileg verkefni: Spilað samstæðuspil …
Jólaföndursdagurinn
Mánudaginn 7. desember var hinn árlegi jólaföndursdagur í grunnskóladeild Auðarskóla. Unnið var á hverju stigi fyrir sig og einungis unnið í jólaföndri fram að hádegi.Elsta stig föndraði gluggaskraut sem hefur raðast í efri gluggana í þeirra stofum og víðar.Miðstig var að skreyta krukkur, búa til súkkulaðiskálar, origami o.fl.Yngsta stig skreyttu líka krukkur og perluðu jólamyndir. Einnig notuðu margir tímann í …
Piparkökuskreyting foreldrafélagsins
Á mánudaginn 14. desember stendur foreldrafélagið fyrir hinni árlegu piparkökuskreytingu. Við byrjum klukkan 17:00 í kaffisalnum í Dalabúð.Foreldrafélagið útvegar piparkökurnar og glassúr. Reynum að redda sem flestum litum í glassúrinn en það er velkomið að koma með fleiri liti.Vinsamlegast komið með ílát til að taka kökurnar með heim í. KveðjaStjórn foreldrafélags Auðarskóla
Gerum stærðfræðina sýnilega
Vikuna 28. sept. til 2. okt. færum við stærðfræðinámið út úr bókunum. Í tveimur kennslustundum á dag hittast hópar þvert á aldur og fást við fjölbreytt stærðfræðiverkefni. Unnið verður með fjölbreyttan efnivið, t.d. perlur, pappír, gangstéttir, gólf, timbur, tvinna og fleira. Viðfangsefnin eru margvísleg og unnið verður með margföldun, hnitakerfi, form og fleira. Útfærslur verkefnanna fara eftir hugmyndaauðgi krakkanna. Stefnt er að …
Ný stjórn foreldrafélags Auðarskóla
Á aðalfundi Foreldrafélags Auðarskóla þann 15. september 2015 var kjörin ný stjórn. Í nýrri stjórn eru Björt Þorleifsdóttir formaður, María Hrönn Kristjánsdóttir gjaldkeri, Jónína Kristín Guðmundsdóttir ritari, Emilía Lilja Gilbertsdóttir meðstjórnandi og Baldur Þórir Gíslason meðstjórnandi. Varamenn stjórnar eru Harpa Sif Ingadóttir og Ásdís Kr. Melsted. Þórey Björk Þórisdóttir gaf áfram kost á sér til næstu tveggja ára sem fulltrúi …
Stjórn nemendafélags Auðarskóla
Kosið hefur verið í stjórn nemendafélags Auðarskóla fyrir skólaárið 2015-2016. Eyrún Eik Gísladóttir var kjörin formaður nemendafélagsins. Sigrún Ósk Jóhannesdótti r var skipaður gjaldkeri og varaformaður og Lydía Nína Bogadóttir ritari og varagjaldkeri. Þá er Birta Magnúsdóttir einnig varagjaldkeri og Árni Þór Haraldsson vararitari. Fulltrúar í skólaráði Auðarskóla eru Helgi Fannar Þorbjarnarson og Erna Hjaltadóttir . Varamenn stjórnar nemendafélagsins eru …
Mikið lesið á miðstigi
Á miðstigi er lestrarátak í gangi sem kallast Lestrarátak Ævars vísindamanns. Þá fá nemendur lesmiða sem gildir fyrir þrjár bækur. Kennari eða foreldrar kvitta þegar búið er að fylla út miðann, honum er skilað inn til kennara og nemendur fá nýjan miða. Átakið er í gangi til 1. febrúar 2015, þá verða miðarnir sendir til Ævars og lenda þar í …


