Nemendur kusu sér nýja stjórn í nemendafélaginu í síðstu viku. Nýja stjórnin er skipuð á eftirfarandi hátt: Formaður kosinn í beinni kosningu : Eggert Kári Ingvarsson úr 9. bekk Fulltrúar úr 8. bekk: Sigrún Ó. Jóhannesdóttir og Ólafur B. Indriðason Varamaður: Dagur Þórarinsson Fulltrúar úr 9. bekk: Eyrún E. Gísladóttir og Hafdís Ösp Finnbogadóttir Varamaður: Helgi F. Þorbjarnarson Fulltrúar úr …
Tónlistarnám í Auðarskóla
Næstu daga geta foreldrar skráð börn sín í tónlistardeild Auðarskóla. Skráningu skal ljúka fyrir 27. ágúst. Áætlað er að kennsla í deildinni hefjist fimmtudaginn 28.ágúst. Kennarar við deildina eru þeir Ólafur Einar Rúnarsson og Jan Michalski. Verklagsreglur tónlistardeildar er að finna hér . Gjaldskrá tónlistardeildar er að finna hér . Umsóknarblað fyrir tónlistarnám er hægt að nálgast hér eða hjá …
Skólasetning
Fimmtudaginn 21. ágúst næstkomandi mæta nemendur með foreldrum sínum sem hér segir: Kl. 09.50 Yngsta stig (nemendur fæddir 2008, 2007, 2006 og 2005) Kl. 10.10 Miðstig (nemendur fæddir 2004, 2003 og 2002) Kl. 10.30 Elsta stig (nemendur fæddir 2001, 2000 og 1999) Tekið er á móti nemendum og foreldrum á hverju stigi fyrir sig. Eftir samveru stigsins ganga umsjónarhópar til heimastofu með …
Nýtt skólaár hafið – innkaupalistar
Nýtt skólaár hófst 1. ágúst en þá opnaði leikskólinn og skrifstofa skólans eftir sumarfrí. Starfsfólk grunnskólans kemur til starfa 15. ágúst og 21. ágúst mæta nemendur til starfa. Stuðst er við sömu viðmið og áður hvað varðar lista yfir nauðsynlegan útbúnað í skólann. Listarnir eru aðgengilegir hér að neðan: Yngsta stig Miðstig Efsta stig Foreldrar eru beðnir að skoða vel …
Áætluð vinnustöðvun FL
Ágætu foreldrar Fimmtudaginn 19.júní næstkomandi er áætluð vinnustöðvun hjá félagi leikskólakennara (FL) hafi ekki náðst samningar fyrir þann tíma. Í leikskóla Auðarskóla er deildarstjóri Álfadeildar félagi í FL og leggur því niður vinnu þann daginn. Vegna þessa er deildin lokuð umræddan dag og ekki hægt að taka á móti börnum . Hjóladagur sem vera á 19.júni fellur einnig niður verði …
Myndir frá sumarhátíð leikskólans
Nú eru komnar 60 myndir frá skemmtilegri og velheppnaðri sumarhátíð leikskólans. Myndirnar eru inni á myndasvæði skólans. Hér.
Myndir úr ljósmyndavali
Síðastliðinn vetur var ljósmyndun kennd í vali í elsta aldurshópnum. Hluti afrakstrarins er aðgengilegur á Flickrsvæði nemendanna. Lítið endilega inn og skoðið.
Sumarferð leikskólans
Fimmtudaginn 12. júní fer leikskólinn í sína árlegu sumarferð. Ferðaáætlunin er nú endanlega ákveðin. Farið verður norður á Strandir í fjöruna norður af Þorpum (ekki langt frá Hólmavík). Lagt verður af stað upp úr kl. 9:00. Fyrsti áfangastaður er Sauðfjársetrið á Ströndum. Litið verður á safnið, skoðaðir heimalingar og hænur. Snæddir ávextir og salernisaðstaðan nýtt áður en farið verður í …
Leikskólakennaranám
Sveitarfélagið Dalabyggð hyggst styðja við bakið á nemendum sem fara í háskólanám í leikskólakennarafræðum. Um er að ræða margþættan stuðning: – laun í staðbundnum lotum og æfingakennslu í leikskólum – eingreiðslur (námsstyrkir) tvisvar á skólaárinu – aðgangur að tölvukerfum Auðarskóla og Office 365 – aðgangur að vinnu- námsaðstöðu í skóla; þrentun, ljósritun, interneti og fl. Stefnt er að því að ná saman nokkrum hópi …
Staðarhólsbók í Auðarskóla
Þann 20. maí kom Svanhildur María Gunnarsdóttir, safnakennari hjá Árnastofnun, í heimsókn með handrit Staðarhólsbókar í farteskinu. Handritið dregur nafn sitt af Staðarhóli í Saurbæ, þaðan sem Árni Magnússon fékk það. Svanhildur kynnti fyrir nemendum á miðstigi íslensku skinnhandritin og fræddi okkur um handverkið við gerð og ritun handritanna. Nemendurnir fengu svo að skrifa eigin ‘handrit’ með fjöðurstaf og jurtableki á bókfell …
