Dagana 19., 20. og 21. október verða nemendakannanir í 2.-5.bekk á vegum Skólapúlsins. Kynningarbréf hefur nú þegar verið sent öllum foreldrum og kennurum. Sjá tölvupóst frá 13. október.
Foreldrasamtalsdagur
Foreldrasamtalsdagur Auðarskóla fór fram í gær, 12. október. Góð mæting var á öllum skólastigum og þakkar starfsfólk skólans foreldrum og forráðamönnum kærlega fyrir komuna.
Aðalfundur foreldrafélagsins 19. október
Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla verður haldinn í grunnskóla Auðarskóla miðvikudaginn 19. október klukkan 20:00, í stofu 7. Allir foreldrar eru sjálfkrafa í foreldrafélaginu-Sjá reglur foreldrafélags Auðarskóla. Á fundinum verður m.a. kosið um einn fulltrúa í fræðslunefnd og einn í skólaráð. Einnig verður kosið um einn fulltrúa í stjórn í foreldrafélagsins.
Vetrarfrí 31.okt-4.nóv grunnskólans
Vetrarfrí grunnskólans verður dagana 31. október til 4. nóvember. Njótum daganna í faðmi fjölskyldu og vina! Skólabílar ganga ekki þessa daga.
Skólapúlsinn
Auðarskóli er orðinn formlegur þátttakandi í Skólapúlsinum. Skólapúlsinn er matstæki sem nýtt er í innra mati/sjálfsmati skóla og fá foreldrar og starfsfólk sent kynningarbréf um Skólapúlsinn. Nemendur fá einnig kennslu og kynningu á Skólapúlsinum.
Dagur leikskólans
Dagur leikskólans var haldinn 6. febrúar sl. Í tilefni dagsins voru listaverk nemenda leikskólans í forgrunni og haldin var sérstök sýning á þeim. Boðið var upp á veitingar og áttu gestir og nemendur góða stund saman. Einnig komu nemendur á elsta stigi í heimsókn til okkar á Tröllaklett. Drengir spiluðu við nemendur fyrir hádegi og stúlkur komu í leikjastund í Fjallasal eftir …
Skólastarf hafið að nýju.
Kæru foreldrar/forráðamennÍ morgun mættu nemendur og starfsmenn í Auðarskóla. Mjög vel hefur gengið að fara etir því skipulagi sem búið var að kynna. Það er mikil ró yfir nemendum og skólastarfið gengið vel í breyttri mynd. Bæði nemendur og starfsmenn hafa staðið sig eins og hetjur til að láta allt ganga. Höldum áfram svona!Kær kveðjaHlöðver Ingi GunnarssonSkólastjóri Auðarskóla