Öskudagsskemmtun foreldrafélagsins

adminFréttir

ATH:  Slæm spá er fyrir miðvikudaginn. Ákveðið hefur verið að fresta þessari skemmtun, sem og öllu öskudagstengdu á vegum skólans, til fimmtudags.

Myndlistarsýning – 10.bekkur.

adminFréttir

Sýning á verkum nemenda 10. bekkjar verður í Stjórnsýsluhúsinu frá og með deginum í dag og fram yfir kosningar.Sýningin ber heitið ,,árstíðirnar fjórar“ og áttu nemendur að túlka tré sem sýnir þær.​Hvetjum alla til að kíkja við.

Skólasetning Auðarskóla

adminFréttir

Skólasetning Auðarskóla fer fram miðvikudaginn 22. ágúst í Dalabúð og hefst athöfnin klukkan 10:00.Klukkan 10:30 verður kynning fyrir nemendur yngsta stigs, klukkan 10:55 verður kynning fyrir nemendur á miðstigi og klukkan 11:20 fyrir nemendur elsta stigs.  Gert er ráð fyrir að foreldrar grunnskólabarna mæti á skólasetninguna og kynningarnar þeirra stiga sem þeirra börn eru á. Einnig minnum við á:Eins og í fyrravetur …

Vortónleikar tónlistardeildar Auðarskóla

adminFréttir

Á þriðjudaginn 15. maí n.k.  verða haldnir hinir árlegu vortónleikar tólistardeildar Auðarskóla. Tónleikarnir fara fram í Dalabúð klukkan 16:00. Nemendur koma fram og sýna listir sínar og viljum við vinsamlega benda áhorfendum á að sitja út tónleikana af virðingu við flytjendur.

Reykir

adminFréttir

​Við í sjöunda bekk erum „nýkomin“ heim frá Reykjum. Á námskeiðunum var gaman og flestir voru að kynnast fleiri krökkum. Okkur fannst flestum skemmtilegast í náttúrufræði og sögu og þá sérstaklega þegar sagan af Gretti var sögð. Byggðasafnið kom líka sterkt inn og hákarlasögurnar fræðandi. Frítíminn var skemmtilegur. Stefán og Daníel voru snyrtipinnar ferðarinnar og fóru í sturtu á hverjum …

Kaffi og með því – mikilvægt fyrir alla foreldra/forráðamenn

adminFréttir

Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla verður haldinn í grunnskólanum þriðjudaginn 26. september kl. 17:30.…Dagskrá:1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.2. Fráfarandi stjórn gerir grein fyrir starfi síðasta starfsárs og fjárhagslegri stöðu félagsins.3. Fulltrúar í skólaráði gera grein fyrir starfi síðasta starfsárs.4. Lagabreytingar.5. Kosningar.  Stjórnarkjör, og kosning fulltrúa í fræðslunefnd og skólaráð ef þörf er á.6. Önnur mál.            Mikilvæg málefni er varða alla foreldra/forráðamenn.Komin eru …

Leikskólabörn sungu við opnum Kjörbúðarinnar

adminFréttir

​Á föstudaginn 13. október 2017 var Kjörbúðin í Búðardal opnuð. Krakkarnir á Tröllakletti tóku þátt í opnuninni með söng þar sem þau fluttu tvö lög í lok ræðuhalda. Krökkunum fannst mjög gaman og spennandi að fá að vera þátttakendur í þessari opnun. 

Dagur eldri borgara

adminFréttir

Kæru Dalamenn 60 ára og eldri Verið velkomin í leikskólann okkar þriðjudaginn 21. nóvember.Það verður opið hús milli kl. 10 og 11í tilefni af degi eldri borgara.Boðið verður upp á hressingu,við tökum kannski lagið samanog eigum góða samverustund. Hlökkum til að sjá ykkur Börn og starfsfólk leikskóla Auðarskóla

Upplestrarkeppni Auðarskóla

adminFréttir

16. mars fór fram, í Auðarskóla, undankeppni fyrir Stóru Upplestrarkeppnina. Keppnin er ætluð nemendum 7. bekkjar og er undirbúningur nokkur fyrir keppni sem þessa og allir eru hvattir til að taka þátt í verkefninu á einhvern hátt. Æfingatímabilið er nokkrar vikur og æfingum fjölgar eftir því sem líður á. Við lok þessa tímabils er ánægjulegt að sjá þær framfarir sem …