Á nýrri örsýningu Héraðsbókasafnsins gefur að líta verk eftir þá nemendur Auðarskóla sem á þessari önn eru í myndmennt. Sýningin mun aðeins standa út marsmánuð og viljum við því hvetja alla til að koma og sjá þessi fallegu myndverk.
Nýtt skóladagatal grunnskóladeildarinnar
Nýtt skóladagatal grunnskóladeildar er nú komið hér inn á vefinn. Nýjum skipulagsdegi hefur verið bætt inn á dagatalið þann 20. febrúar en það er dagur sem vantaði inn á dagatalið í upphafi skólaársins. Uppfært dagatal má nálgast hér fyrir neðan og undir „grunnskóli“ og „skóladagatal“ Skóladagatal 2017-2018 File Size: 53 kb File Type: xls Download File
Vetrarfrí
Dagana 30. október – 1. nóvember 2017 er vetrarfrí í grunnskóladeild Auðarskóla. Þá er engin kennsla í grunnskólanum og skólabílar keyra ekki. Einnig fellur niður starf Fjallasals á þessum dögum sem og tómstundirnar á miðvikudagseftirmiðdaginn. Vonandi eiga allir eftir að njóta frísins með börnunum sínum og hlökkum við til að sjá þau koma aftur í skólann endurnærð eftir frí.
Stóra upplestrarkeppnin í Búðardal
Föstudaginn 29. mars 2019 var stóra upplestrarkeppnin haldin í Búðardal. Til stóð að keppnin ætti að fara fram fimmtudaginn 28. mars en þar sem veðurhorfur voru slæmar og vetrarfærð þá var ákveðið að fresta henni um sólarhring. Föstudagurinn rann um með góðu veðri sól og vetrarblíðu. Keppendur frá Heiðarskóla, Grunnskólanum í Borgarnesi og Grunnskóla Borgarfjarðar komu hingað í Búðardal ásamt …
Núvitund fyrir pabba, mömmur, afa og ömmur
Foreldrafélag Auðarskóla býður upp á erindi um núvitund í uppeldi barna, fimmtudaginn 7. febrúar kl: 20:00, í sal efri byggingu grunnskólans. Námskeiðið heitir “ Núvitund fyrir pabba, mömmur, afa og ömmur og aðra sem koma að uppeldi barna „. Í þessu fræðsluerindi kynnir Bryndís Jóna frá Núvitundarsetrinu hvað felst í núvitund og gildi núvitundar fyrir alla þá sem koma að …


